19.11.2009

Íslenskir fjallaleiðsögumenn hljóta umhverfisverðlaun Ferðamálastofu

Íslenskir fjallaleiðsögumenn hlutu í dag umhverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir árið 2009.  Þetta er í 15. skiptið sem verðlaunin eru veitt en Ferðamálastofa veitir árlega umhverfisverðlaun því fyrirtæki eða stofnun sem best þykir hafa staðið sig í umhverfismálum það árið.  Íslenskir fjallaleiðsögumenn hljóta verðlaunin fyrir markvissa umhverfisstefnu, með það að leiðarljósi að öll ferðamennska á vegum fyrirtækisins sé sjálfbær, og fyrir áralanga baráttu fyrir verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða með hagsmuni næstu kynslóða í huga.

Íslenskir fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 af fjórum ungum fjallaleiðsögumönnum en hefur frá þeim tíma sameinast tveimur öðrum fyrirtækjum, Íslandsflökkurum og Íslenskum ferðamarkaði. Fyrirtækið hefur frá upphafi haft það að markmiði að auka fagmennsku og fræðslu í leiðsögn og stuðla að góðri umgengni og verndun viðkvæmrar náttúru. Íslenskir fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum.

Íslenskir fjallaleiðsögumenn fylgja umhverfismarkmiðum World Wildlife Fund fyrir ferðaþjónustu á heimskautasvæðum og hafa tekið þátt í samnorrænu umhverfissamstarfi FINECO varðandi sjálfbæra umgengni við náttúruna. Fyrirtækið hefur tekið virkan þátt í umræðu um náttúruvernd hérlendis sem erlendis og setið í stjórnum og ráðum sem varða umhverfisvernd og ferðamennsku. Í ferðum Fjallaleiðsögumanna er  hugmyndafræðin "Leave No Trace Principles" höfð í hávegum, en það eru leiðbeinandi umgengnisvenjur um sjálfbæra ferðamennsku á ósnortnum svæðum sem miðar að því að draga úr óhjákvæmilegu álagi af völdum ferðamanna.  Íslenskir fjallaleiðsögumenn fylgja umhverfisstefnu á skrifstofu og lager á sama hátt og úti í náttúrunni. Pappi, plast, málmar, fernur, gler, rafhlöður og lífrænt affall er endurunnið eða endurnýtt allt árið. Fyrirtækið nýtir sér almenningssamgöngur í 50-60% ferða sinna og er í góðu samstarfi við heimamenn varðandi ýmsa þjónustu, leiðsögn og gistingu. 

Orðspor og fjöldi ánægðra viðskiptavina bera þess vitni að starfsemi fyrirtækisins hefur borið góðan ávöxt.

Á meðfylgjandi mynd eru, talið frá vinstri: Sveinn Rúnar Traustason umhverfisstjóri Ferðamálastofu; Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri; Jón Gauti Jónsson, Elín S. Sigurðardóttir, Ester Ósk Traustadóttir, Leifur Örn Svavarsson og Arnar Jónsson, öll frá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum og Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN