Starfsmenntaviðurkenning SAF – Samtaka ferðaþjónustunnar 2010 var afhent í þriðja sinn á Degi menntunar í ferðaþjónustu sem haldin var á Grand Hóteli í gær og að þessu sinni hlutu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn verðlaunin. Við erum að vonum óskaplega stolt af þessari viðurkenningu sem er okkur mikil hvatning til að halda áfram á þeirri faglegu og metnaðarfullu braut sí- og starfsmenntunar sem við höfum fetað sl. ár.
Viðurkenninguna hlutum við fyrir menntun jökla- og fjallaleiðsögumanna og að hafa með skýrri sýn lagt áherslu á mikilvægi starfsmenntunar í allri starfsemi okkar með það að markmiði að auka öryggi, starfsánægju, draga úr starfsmannaveltu og síðast en ekki síst til að ná samkeppnisforskoti og auka arðsemi í rekstri fyrirtækisins með aukinni starfsmenntun. Í rökstuðningi dómnefndar segir að einkum hafi eftirfarandi legið til grundvallar ákvörðunar um að veita ÍFLM viðurkenninguna: • Markviss starfsmannaþjálfun með það að leiðarljósi að betri þjálfun starfsfólks skili sér í auknu öryggi • Ótvíræður árangur starfmannaþjálfunar hvað starfsánægju og minni starfsmannaveltu varðar • Þjálfunarkerfið er aðlaðandi fyrir metnaðarfullt fjallafólk sem sækir í faglega þjálfun og hefur gert alla stjórnun skilvirkari • Öflugt samstarf við Nýsjálendinga á sviði þjálfunarstarfs þar sem hugað er að öryggismálum og jafnframt tekur þjálfunin einnig til þjónustu- og gæðaþátta. • Þrepaskipt nám fyrir starfsfólk sem þarf oft að takast á við erfiðar aðstæður • Jákvætt viðhorf til símenntunar allra starfsmanna með fræðslukvöldum um margvísleg efni • Þjálfun og öryggismál verða stærri þáttur í markaðsmálum fyrirtækisins og skapa því ákveðið samkeppnisforskoti gegnum markvissa símenntunarstefnu
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996