13.12.2011

Fréttir frá okkar fólki í Nýja Sjálandi

Í vetur hafa tveir leiðsögumenn frá ÍFLM lagst í víking og eru nú við vinnu hjá Fox Glacier Guiding á Nýja Sjálandi. Þetta er þau Tryggvi Z. Pálsson og Margrét Vignisdóttir. 

Núna á dögunum notaði Tryggvi stutt vaktafrí til að klífa hærsta fjall Nýja Sjálands, Mt. Cook, 3.754m. Mt. Cook er eitt fallegasta fjall í heimi og langt frá því að vera gefin fengur fyrir fjallamenn. Veðrið á svæðinu er oft mjög erfitt og fjallið sjálft er mun brattara en t.d. Hvannadalshnúkur. 
Við óskum Tryggva til hamingju með þennan áfanga og vonum að þau nái bæði að nýta dvöl sýna í þessu ævintýralandi til frekari afreka á sviði klifur og fjallamennsku. 


Íslenskir Fjallaleiðsögumenn - Örugglega á Fjöllum

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá Tryggva á Mt. Cook.







Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN