Jón Gauti Jónsson
Alpine Trekking Guide

Jón Gauti er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur um árabil verið einn af færustu leiðsögumönnum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna. Jón Gauti hóf fjallaferilinn ungur að árum og aflaði sér jafnt og þétt reynslu og réttinda á því sviði.
Til að byrja með lá leiðin í Íslenska Alpaklúbbinn og Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík, þar sem hann starfaði með undanfarahópi um árabil. Auk þess að miðla af reynslu sinni sem leiðbeinandi Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar í fjallamennsku, fjallabjörgun, ís- og klettaklifri hefur hann leiðbeint á vegum Leiðsöguskólans og við Háskólann á Hólum.
Jón Gauti hefur tekið til hendinni í útivistartengdum ritstörfum. Hann var einn eigandi og ritstjóri tímaritsins Útiveru og skrifaði bókina Gengið um óbyggðir, sem telja verður til grundvallarrita í ferðamennsku og útivist. Jón Gauti er áhugamaður um íslenska náttúru og hvers konar útiveru. Hann sameinar þessi hugðarefni sín í leik og starfi á fjöllum við leiðsögn, fylgd fjölskyldunnar eða annarra ferðalanga.
Þá verður ekki horft framhjá fjölhæfni Jóns Gauta sem er jafnvígur á tvo jafnfljóta, brodda, hjól, skauta eða skíði og gildir þá einu hvort um er að ræða svig-, telemark- eða gönguskíði. Svo leiðist honum ekkert að sveifla ísöxum sínum þegar brattinn verður meiri.
Jón Gauti er yfirleiðsögumaður í fjallgönguhópum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna, Fjallafólki og Toppaðu með 66°N.

English
Íslenska
















