Helga María Heiðarsdóttir
Level 1 jöklaleiðsögumaður
Helga María hefur verið leiðsögumaður hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum síðustu ár, mest í jöklaferðum, en hefur einnig verið atkvæðamikil í fjallgönguhópunum, Fjallkonum Íslands og Toppaðu með 66°N og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum. Hún er nú yfirleiðsögukona Fjallkvenna Íslands.
Helga María er nemandi í landfræði við Háskóla Íslands og starfar sem aðstoðamaður prófessors við rannsóknir. Náttúran er hennar hjartans mál og þegar hún er ekki að rannsaka hana með augum landfræðingsins er hún úti að leika í henni, hvort heldur gangandi, skíðandi, hlaupandi eða sitjandi. Ef hún er ekki utandyra situr hún líklega yfir landakortum eða lestri um náttúruleg og jarðfræðileg fyrirbæri.
Fjallaferill Helgu Maríu hófst á Akranesi. Hún hefur verið meðlimur í Björgunarfélagi Akraness um árabil þar sem hún meðal annars vann ötult starf við stofnun unglingadeildarinnar Árness ásamt því að vera skátaforingi hjá Skátafélagi Akraness. Hún sótti fjallabjörgunarnámskeiðið Rigging for Rescue í Colorado á vegum Björgunarfélagsins og hefur kennsluréttindi hjá Björgunarskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í ferðamennsku og rötun. Helga María er félagi í Íslenska Alpaklúbbnum.

English
Íslenska
















