Nám, réttindi og kröfur Fjallaleiðsögumanna

Leiðsögumenn fyrirtækisins eru án nokkurs vafa mesti auður fyrirtækisins. Vegna þess að engar opinberar kröfur eru gerðar til jökla- og fjallaleiðsögumanna á Íslandi hafa Fjallaleiðsögumenn jafnan lagt mikinn metnað í þjálfun og endurmenntun leiðsögumanna sinna. Frá árinu 1998 hafa svo kölluð öryggisnámskeið verið haldin á hverju vori fyrir nýja og eldri leiðsögumenn til undirbúa þá fyrir sumarið. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa jafnan verið í fararbroddi þeirra fyrirtækja og félagasamtaka sem starfa í afþreygingarferðamennsku hér á landi.

Þekking og reynsla andfætlinga nýtt hér á landi.

Aðstæður í fjalllendi Nýja-Sjálands eru um margt mjög svipaðar aðstæðum hér á landi. Snæviþakin fjöll og skriðjöklar laða sífellt fleiri til sín og á Nýja-Sjálandi er löng hefð fyrir afþreygingarleiðsögn um fjöll og jökla.
Árið 1981 var fjallaleiðsögunám á Nýja-Sjálandi viðurkennt af Alþjóðlega Fjallaleiðsögumanna Sambandinu - IFMGA (International Federation of Mountain Guides Associations).

Árið 2004 hélt nýsjálenskur fjallaleiðsögumaður Nick-Cradock námskeið fyrir nokkra starfandi leiðsögumenn fyrirtækisins. Þar með hófst samstarf við nýsjálenska fjallaleiðsögumenn sem bæði hefur orðið til þess að leiðsögumenn á vegum Fjallaleiðsögumanna hafa starfað við leiðsögn á Nýja-Sjálandi og öfugt en einnig hafa þeir séð um námskeið hér á landi.

Nám og réttindi í jöklaleiðsögn á Íslandi - Staðlar Íslenskra Fjallaleiðsögumanna 2009
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn þjálfa jöklaleiðsögumenn eftir stöðlum Nýsjálenska Fjallaleiðsögumanna Sambandsins (New Zealand Mountain Guide Association). Nánari upplýsingar um próf og námsmat má finna á heimasíðu Nýsjálenska Fjallaleiðsögumanna Sambandsins 
Námið skiptist í eftirfarandi þætti:

1.     Grunnþjálfun í fjallamennsku
Verðandi jöklaleiðsögumenn þurfa að hafa lokið grunnþjálfun í fjallamennsku. Grunnþjálfun í fjallamennsku felur í sér námskeiðin: Vetrarfjallamennska, Ísklifur 1, Ísklifur 2 og Jöklanámskeið. Þessi námskeið eru kennd í nýliðaþjáfun flestra björgunarsveita, en einnig er hægt að sækja þessi námskeið hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum þar sem þau eru bæði kennd hvert í sínu lagi og sem samfellt fimm daga námskeið; Almenn fjallamennska. Reynsla í fjallamennsku og sambærileg erlend námskeið sem ekki eru kennd eftir íslenskum stöðlum eru einnig metin.  
 
2.    Námskeið í jöklaleiðsögn
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn halda fjögra daga námskeið í jöklaleiðsögn.  Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnþjálfun í fjallamennsku, vera með gild skyndihjálparskírteini og verða að mynsta kosti 20 ára á árinu. Þátttakendur á námskeiðinu fá skriflega umsögn. Standist þeir tilsettar kröfur geta þeir starfað sem aðstoðarleiðsögumenn með vanari leiðsögumönnum til þess að öðlast frekari reynslu. Mikilvægt er að aðstoðarleiðsögumenn skrái reynslu sína (ferðir með og án viðskiptavina) í dagbók (logbók)
4-5 þátttakendur á hvern leiðbeinenda.
 
3.    Fyrrihluta próf (Level 1)
Þátttakendur þurfa að sýna fram á (í dagbók) að þeir hafi unnið að minnsta kosti 30 daga sem aðstoðarleiðsögumenn á skriðjökli. Prófið stendur yfir í 3,5 daga og yfirprófdómari er Nýsjálenskur Fjallaleiðsögumaður. Vorin 2008 og 2009 var yfirdómari Gary Dicson. Gefinn er skrifleg einkun og þurfa þátttakendur að ná 65% árangri. Standist nemendur tilskyldar kröfur fá þeir réttindi til þess að starfa sem skriðjökulsleiðsögumenn og afla sér frekari reynslu fyrir réttindaprófið (Level 2).
3 þátttakendur á hvern leiðbeinanda.
 
4.    Seinnihluta próf (Level 2)  Réttindapróf fyrir Skriðjökulsleiðsögumenn
Þátttakendur þurfa að sýna fram á (í dagbók) að þeir hafi unnið að minnsta kosti 100 daga í vinnu sem jöklaleiðsögumenn, þar af að minnsta kosti 5 daga við leiðsögn í ísklifri.  Æskilegt er að þátttakendur hafi lokið Fyrrihluta prófi (Level 1) en það er ekki skilyrði hafi umsækjendur tilskylda starfsreynslu.  Prófið stendur yfir í 3,5 daga og er yfirdómari Nýsjálenskur Fjallaleiðsögumaður.  Vorin 2008 og 2009 hefur yfirdómari verið Gary Dicson. Gefin er skrifleg einkun og þurfa þátttakendur að ná 75% árangri.  Standist nemendur tilskyldar kröfur fá þeir réttindi sem „Skriðjökulsleiðsögumenn“ og meiga leiðsegja hópum á vegum Fjallaleiðsögumanna um skriðjökla ásamt því að kenna ísklifur. 
3 þátttakendur á hvern leiðbeinanda.
 
5.    Fullnaðar próf í jöklaleiðsögn - Réttindapróf fyrir Jöklaleiðsögumenn
Þátttakendur þurfa að hafa staðist próf sem „Skriðjökulsleðsögumenn“ og unnið tvö sumur sem skriðjökulsleiðsögumenn (þjálfunartími innifalinn).  Þeir þurfa að hafa lokið námskeiðunum Wildernes First Responder, Level 1 snjóflóðanámskeiði og  Mountain Skill Corse með fullnægjandi hætti.  Tvö þau fyrrnefndu eru kennd hjá Björgunarskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar en Íslenskir Fjallaleiðsögumenn munu halda námskeiðið Mountain Skill Corse með Nýsjálenskum Fjallaleiðsögumanni. 
Þátttakendur þurfa að geta sýnt fram á, í dagbók ,að þeir hafi víðtæka fjallamennskureynslu, að minnsta kosti 30 daga, bæði að sumri og vetri sem nær yfir þriggja ára tímabil.  Reynlan þarf að ná til helstu jökla og hærri fjalla landsins. Að minsta kosti þrjár langar fjallgönguleiðir þurfa að innihalda 3. gráðu klifur.  Fjallamennskureynslan þarf að innihalda nokkura daga skíðaferðir og reynslu í þverun straumvatna. Þátttakendur þurfa að hafa farið að minsta kosti tvisvar sem aðstoðarleiðsögumenn á Hvannadalshnjúk eða sambærileg fjöll, undir eftirliti reyndra Jöklaleiðsögumanna.
Fullnaðarprófið er 7 dagar og er bæði haldið á skriðjökli og í fjallgöngum á Öræfajökul. Ekki er gert ráð fyrir að nemendur þurfi nema lámarks tilsögn meðan á prófinu stendur.  Þátttakendur verða prófaðir hvernig þeir standa sig sem yfirleiðsögumenn á skriðjökli, yfirleiðbeinendur á ísklifurnámskeiði, og sem sjálfstæðir leiðsögumenn á Hvannadalshnjúk, Hrútfjallstindum, Þverártindsegg eða sambærilegum leiðum. Nemendur fá skriflega umsögn og ef þeir standast tilskildar kröfur fá þeir réttindi sem Jöklaleiðsögumenn.
Útskrifaðir Jöklaleiðsögumenn hafa réttindi til þess að starfa sem yfirleiðsögumenn á skriðjökli og hafa tilsjón með jöklaleiðsögumönnum í þjálfun. Jöklaleiðsögumenn hafa réttindi til þess að taka hópa á hæstu jökla landsins.
Þrír þátttakendur á hvern leiðbeinanda.
 
Endurmentun leiðsögumanna
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn halda á hverju vori þriggja daga símenntunar og upprifjunarnámskeið fyrir starfandi leiðsögumenn á vegum fyrirtækisins. Námskeiðið gengur undir nafninu „Öryggisnámskeið“ og er þar farið yfir helstu vinnureglur, staðla og öryggisatriði.
Leiðsögumenn sem taka eitthvert ofangreindra prófa sama vor eru undanþegnir mætingarskyldu á Öryggisnámskeið en ætlast er til að allir aðrir leiðsögumenn mæti á Öryggisnámskeið á hverju ári.

 Áhugasömum leiðsöguefnum er bent á að hafa samband við Leif Örn Svavarsson vilji þeir slást í hópinn.