Laus störf hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum
Dagsferðadeild óskar eftir Sölumannskju í Skaftafell og Skóga
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn leita að afburðar sölumanneskju í Starfsstöðvar sínar í Skaftafelli og að Skógum í sumar. Unnið er á tveggja vikna vöktum með viku fríi á milli. Starfsmenn gista á staðnum. Helstu verkefni eru sala dagsferða til erlendra ferðamanna, bókun í gistingu og upplýsingagjöf til ferðamanna og leiðsögumanna.
Leitað er að duglegri manneskju sem á auðvelt með að vinna undir álagi og passar vel inn í þá sterku liðsheild sem fyrirtækið hefur á viðkomandi starfsstöðum.
Áhugasamir sendi ferilsskrá með mynd á ivar@mountainguides.is
Dagsferðadeild óskar eftir jöklaleiðsögumönnum
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn leita eftir frambærilegum starfskröftum í jöklaleiðsögn fyrir starfsstöðvar í Skaftafelli og á Sólheimajökli.
Unnið er í tveggja vikna vöktum sem eru annað hvort vika í Sólheimajökli og vika í Skaftafelli eða tvær vikur í Skaftafelli. Almennt er svo viku frí á milli vakta. Í báðum tilfellum gista starfsmenn á svæðinu og eru í fullu fæði. Fyrirtækið sér um flutning frá Reykjavík og í starfsstöðvarnar tvær vikulega.
Laun eru í samræmi við kjarasamninga Félags leiðsögumanna.
Verkefnin eru fyrst og fremst leiðsögn í stuttum jöklaferðum á Svínafellsjökul. Fyrir þá sem hafa sterkan bakgrunn eru einnig verkefni í leiðsögn á Hvannadalshnjúk og Hrútsfjallstinda.
Leitað er að einstaklingum með góðan grunn í almennri fjallamennsku og línuvinnu við sprungubjarganir, t.d. nýliðaþjálfun björgunarsveita eða fjallamennskunámskeið Fjallaleiðsögumanna. Viðkomandi verður að hafa gott vald á talaðri ensku og vera hæfur um að koma upplýsingum frá sér á skýran og skilmerkilegan hátt við hóp fólks. Færni til að vinna í hóp er jafn mikilvæg og færni til að vinna einn.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn stefna að jöfnum tækifærum kynjanna og konur er því sérstaklega hvattar til að sækja um.
Allir jöklaleiðsögumenn fá þjálfun eftir þjálfunarkerfi ÍFLM.
Lágmarks aldur er 20 ár en almennt eru leiðsögumenn ekki yngri en 23.
Áhugasamir sendi ferilsskrá með mynd yfir starfsferil og fjallamennsku / Bj.sv. feril á ivar@mountainguides.is

English
Íslenska

















