Vertu áskrifandi að Fjallageitinni,
fréttabréfi Íslenskra fjallaleiðsögumanna

 
 













 
 

Fyrir ferðaskrifstofur

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa áralanga reynslu af skipulagningu og útgerð ferða á milli fjalls og fjöru um landið þvert og endilangt fyrir innlenda og erlenda ferðaþjónustuaðila. Slíkar ferðir eru alltaf farnar í nafni viðkomandi ferðaþjónustuaðila og kjörorð okkar eru samvinna, öryggi og virðing fyrir umhverfinu. En ÍFLM býður líka upp á afþreyingu af ýmsum toga sem hægt er að skjóta inn í dagsferðir og lengri ferðir. Jöklagöngurnar okkar hafa þegar fest sig í sessi og í boði eru lengri og skemmri ferðir á Sólheimajökul og Svínafellsjökul þar sem fólki gefst kostur á að kynnast heillandi landslagi jökulsins undir leiðsögn og eftirliti þrautþjálfaðra leiðsögumanna okkar. Ísklifur er skemmtileg íþrótt sem við bjóðum einnig upp á fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Síðast en ekki síst eru í boði ferðir á Hvannadalshnúk, hæsta tind landsins.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN