Fyrir kvikmyndatökur og ljósmyndara
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa áralanga reynslu af því að aðstoða kvikmyndafólk og ljósmyndara á Íslandi og Grænlandi.
Sérþekking Íslenskra Fjallleiðsögumanna á íslensku og grænlensku landslagi og náttúrufari gerir okkur kleyft að finna einstaka og oftast fáfarna staði sem henta sérhverju verkefni.
Á meðal þess sem Íslenskir Fjallleiðsögumenn sjá um er:
- ... að finna rétta staðinn fyrir sérhvert verkefni
- ... að sjá um allan undirbúning og skipulagningu svo sem allan flutning, gistingu og mat ... jafnvel við erfiðustu aðstæður í óbyggðum.
- ... að tryggja öryggi á tökustað t.a.m. á jöklum eða í öðrum ófærum.
Á meðal vel heppnaðra verkefna af þessu tagi má nefna Global Extreme og Amazing Race. Þá hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn einnig unnið fyrir frönsku stöðina la 5, belgíska- finnska- og íslenska sjónvarpið, auk fjölda vel þekktra erlendra ljósmyndara.

English
Íslenska

















