Grunnatriði í fjallamennsku að vetrarlagi
Markmið: Markmið námskeiðisins er að nemendur læri grunnatriði fjallamennsku og klifurs að vetrarlagi. Að loknu námskeiðinu eiga þátttakendur að vera færir um að fara í og skipuleggja stuttar ferðir til að byggja upp eigin reynslu. Enn fremur eiga þeir að geta tekist á við auðvelt snjóklifur af öryggi. Nemendum er þó nauðsynlegt að kynna sér notkun korta og nútíma leiðsögutækja áður en haldið er í slíkar ferðir. Námskeiðið hentar öllum þeim sem hafa áhuga á vetrarferðamennsku
Hvenær:Bóklegt 8. febrúar, verklegt 11. og 12. febrúar 2012
Kröfur: Ekki er gerð krafa um önnur námskeið. Þátttakendur verða að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi og þeir verða að mæta á verklegan hluta námskeiðisins í viðeigandi fatnaði og með viðeigandi viðlegubúnað til vetrarferða, sjá útbúnaðarlista sem verður útdeilt til þátttakenda.
ATH: Netklúbbsverð og verð til félaga í Íslenska Alpaklúbbnum er 34.500 kr, vinsamlegast hafið samband við Ívar Finnbogason
Innifalið : 1 leiðbeinandi á hverja 6 þátttakendur, sameiginlegur fjallabúnaður og búnaður þáttakenda, námsgögn
Ekki innifalið : Akstur á vettvang
Hafa í huga : Ítarlegur útbúanaðarlisti verður afhentur við upphaf námskeiðsins. Kennari áskilur sér rétt til að hafna notkunn búnaðar í eigu þátttakenda.
