Dagana 18. og 19. október næstkomandi munu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn standa fyrir námskeiði í sprungubjörgun á jökli fyrir jeppabílstjóra. Á námskeiðinu verður kynnt aðferð til að framkvæma áhrifaríka sprungjubjörgun á jökli sem Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa þróað í samvinnu við jeppaleiðsögumenn Iceland Rovers komi til þess að einstaklingur falli í jökulsprungu í jeppaferð.
Haustið 2010 var þessi aðferð kynnt fyrir jeppaleiðsögumönnum í formi tveggja daga námskeiðs og núna í október verður námskeiðið endurtekið og er opið öllum.
Aðferðin sem um ræðir byggir að mestu leyti á hefðbundinni sprungubjörgun eins og hún er framkvæmd af fjallaleiðsögumönnum en jeppinn er nýttur við björgunina og notaður er einfaldari en þyngri búnaður en göngumenn notast við.
Námskeið er sérstaklega þróað og hugsað fyrir þá sem aka með ferðamenn um jökla í atvinnuskyni en nýtist einnig vel fyrir áhugaökumenn sem vilja vera við öllu búnir.
Dagur 1, 18. október frá kl. 9.00 til kl. 17.00: Kennsla fer fram innanhúss og miðar að því að kynna búnað og grunnaðferðir sprungubjörgunar fyrir þátttakendum.
Dagur 2, 19 október frá kl. 8:00 til kl. 20:00: Farið í gegnum raunsæ dæmi um björgun á jökli. Þá verður farið uppá jökul í raunverulegar aðstæður.
Verð: 25.000 kr. á mann
Innifalið: Kennsla, allur sérhæfður fjallamennskubúnaður, námsgögn.
Ekki innifalið: Allur akstur og ferðir, gert er ráð fyrir að nemendur leggi sjálfir til bíla í verklega hlutann.
