Námskeið fyrir nýja leiðsögumenn 12. - 15. apríl

Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og svo á reikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0

Umsækjendur eru metnir á eftirfarandi sviðum:
  • Færni í björgunarmálum - línuvinna og sprungubjörgun. 
  • Færni í samskiptum - hæfni til að koma alúðlega fram við gesti, fræða þá og skemmta þeim. 
  • Færni í almennum samskiptum við samstarfsfélaga í þeiri nánu sambúð sem við erum í í Skaftafelli og á Sólheimajökli.  

Til að búa ykkur undir þetta námskeið ættuð þið að lesa ykkur til um einhvern eða alla af eftirfarandi þáttum: 
  • Jöklafræði: Hvernig virka jöklar, hver er þróuninn í stærð þeirra í dag og hversvegna. Hvernig verða helstu fyrirbæri eins og sprungur og svelgir til. 
  • Saga: Það er frá mörgu skemmtilegu að segja í Öræfunum og á Sólheimajökli. 
  • Öræfi: Skipsskaðar (t.d. Gullskipið), búseta í einangrun, Eldgos í Öræfajökli og margt fleira.
  • Sólheimajökull: Flugslys í WWII, eldgos ofl.
  • Jarðfræði: Helstu eldgos í Eyjafjallajökli, Kötlu, Öræfajökli, og Bárðarbungu (Grímsvötnum).

Ráðning í starf veltur mjög á framistöðu í ofantöldu en hlutir eins og fjallamennsku reynsla, aukin ökuréttindi, skyndihjálpar kunnátta (WFR) og líkamlegt atgervi vega einnig þungt.

 
Námskeiðið sjálft kemur til með að kosta 20.000 kr. auk þess sem nemendur greiða einnig fyrir matarkostnað og gistingu ef ÍFLM verður að leggja út fyrir henni. Kostnaður við matinn verður líklega aðeins um 5 - 7 þúsund krónur. Líklega verður gist í Guantanamó (starfsaðstöðu ÍFLM í Skaftafelli). Þá er gisting í boði ÍFLM.
Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN