Fjallaskíðun er frelsi.
Markmið:Námskeiðinu er ætlað að kynna fjallaskíðamennsku fyrir fólki svo það geti í framhaldinu hafið skíðamennsku í fjalllendi og rennt sér utan brauta. Farið er yfir viðeigandi búnað og notagildi hans við fjallaskíðun. Upplagt námskeið fyrir þá sem vilja kynnast færinu og upplifa stemmingunni utan hefðbundinna skíðasvæða. Búnaðurinn, tæknin og öryggismálin.
Námskeið: Námskeiðið er eitt kvöld, 28.mars og einn dagur, 31. mars 2012 - Staðfest þar sem lágmarksfjölda þáttakenda hefur verið náð!
Kröfur: Engar forkröfur eru fyrir þátttöku á námskeiðinu en fínt er ef nemendur kunna að renna sér á skíðum!
ATH: Netklúbbsverð og verð til félaga í Íslenska Alpaklúbbnum er 20.900 kr, vinsamlegast hafið samband við Ívar Finnbogason
Innifalið : 1 leiðbeinandi á hverja 8 þátttakendurEkki innifalið : Fjallaskíði, fjallaskíðaskór, skíðastafir, ísöxi, snjóflóðaýlir, skófla og snjóflóðastöng. Hafa í huga : Athugið að allan nauðsynlegan búnað er hægt að leigja hjá Fjallaleiðsögumönnum og/eða Fjallakofanum Upphafsstaður : Klifurhúsið
Dagskrá námskeiðsins
Kvöld 28. mars 2012Kynning á helsta útbúnaði svo sem skíðum, skíðaskóm, snjóflóðaýlum, skóflum og stöngum, skinnum og öðrum fjallaskíðabúnaði. Rætt er um viðeigandi fatnað, nesti, vökvaþörf og skipulaga ferða. Undirbúningur fyrir útikennsluna.
Dagur 31. mars 2012Heill dagur á skíðum þar sem áhersla er lögð á að gera þátttakendur meðvitaða um gildi fjallaskíðamennsku og hvaða möguleika slík skíðamennska skapar. Leiðbeinandi fer í leiðarval með tilliti til snjóflóðahættu og það hvað helst ber að varast. Þá er farið í notkun snjóflóðaýla og hún æfð ítarlega.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996