Námskeið í almennri fjallamennsku haldið í apríl 2012- Markmið námskeiðsins er að veita mönnum allhliða grunn í fjallamensku og gera þá hæfari til þess að fara klifur og jöklaferðir á eigin vegum.Alhliða námskeið í fjallamennsku
Hvenær: 5-10. apríl 2012 - Staðfest þar sem lágmarksfjölda þáttakenda hefur verið náð!
Hve lengi: 6 dagar.
Hvar: Skaftafelli.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að veita mönnum alhliða grunn í fjallamensku og gera þá hæfari til þess að fara klifur- og jöklaferðir á eigin vegum. Á námskeiðinu er farið yfir efni námskeiðana; Vetrarfjallamennska, Jöklanámskeið, Ísklifur 1 og Ísklifur 2.
Kröfur:
Ekki er gerð krafa um önnur námskeið, en þátttakendur verða að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi. Þá verða þátttakendur að mæta í viðeigandi útivistar fatnaði og með viðeigandi viðlegubúnað til vetrarferða. Skráðir þátttakendur fá sendan ítarlegan útbúnaðarlista.
ATH: Netklúbbsverð og verð til félaga í Íslenska Alpaklúbbnum er 119.900 kr, vinsamlegast hafið samband við ivar@mountainguides.is
Innifalið : Allur sameiginlegur jökla og öryggisbúnaður, 1 leiðbeinandi á hverja 6 þátttakendur, búnaður þáttakenda og jöklatjöld til notkunar þegar gist er á jöklinum.
Ekki innifalið : Akstur til og frá Skaftafelli, gisting og fæði.
Hafa í huga : Hægt er að leigja viðeigandi klifur og jöklabúnað hjá Fjallaleiðsögumönnum á Vagnhöfða 7. Til að fá sem mest út úr námskeiðinu er mælt með að þátttakendur mæti í stífum klifurskóm. Kennari áskilur sér rétt til að hafna notkun búnaðar í eigu þátttakenda.
Upphafsstaður : Skaftafell
Hópastærð: 6 þáttakendur á hvern leiðsögumann
