Námskeið

Námskeið í fjallamennskulistinni gera þig færari um að bjarga þér við erfiðar aðstæður til fjalla.
Á námskeiðum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna öðlast þú þekkingu og færni sem gerir þig betur í stakk búin til að afla þér reynslu í ferðum í stundum óblýðri náttúru landsins.
Sérhæfðir leiðbeinendur Íslenskra Fjallaleiðsögumanna hafa margir hverjir áratuga reynslu á sínu sviði, ásamt áralangri reynslu af leiðsögn um fjöll og firnindi.

Almenn Fjallamennska - IMG 111

Námskeið í almennri fjallamennsku haldið í apríl 2010 - Markmið námskeiðsins er að veita mönnum allhliða grunn í fjallamensku og gera þá hæfari til þess að fara klifur og jöklaferðir á eigin vegum.

Verð frá: 149.000 ISK

Ísklifur 1 - byrjendanámskeið - IMG112

Byrjendanámskeið - Eitt kvöld í miðri viku og heill dagur á skriðjökli.

Verð frá: 21.000 ISK

Ísklifur 2 - IMG114

Framhaldsnámskeið í Ísklifri

Verð frá: 23.000 ISK

Snjóflóðanámskeið - IMG115

Mat á snjóflóðahættun og viðbrögð við snjóflóðum. Næsta námskeið 2. febrúar (bóklegt) og 6. febrúar (verklegt). Leiðbeinandi verður Leifur Örn Svavarsson fjallaleiðsögumaður og sérfræðingur Veðurstofu

Verð frá: 20.000 ISK

Vetrarfjallamennska - IMG116

Grunnatriði í fjallamennsku að vetrarlagi Næsta námskeið helgina 27.-28. febrúar og bóklegur hluti að kveldi 24. febrúar.

Verð frá: 35.500 ISK

Fjallaskíðanámsskeið - IMG117

Fjallaskíðun er frelsi. Bóklegt 3. mars Verklegt laugardaginn 6. mars

Verð frá: 20.000 ISK

Jöklanámskeið - IMG113

Leiðarval og sprungubjörgun á jökli. Haldið 9.-11. apríl 2010.

Verð frá: 35.500 ISK