Hvar er myndin tekin?

6. myndagetraun Fjallageitarinnar

 Myndagetraun 6

Ef þú kannast við staðinn skaltu senda svarið á myndagetraun@fjallaleidsogumenn.is.   Dregið verður úr réttum svörum í næstu Fjallageit og mun vinningshafinn hljóta skemmtilega samsetta göngu- og jöklaferð fyrir 1, svo kallaða "Walk through Ice and Fire", sem er ganga í Reykjadal og á Sólheimajökli. 

Linda Björnsdóttir var dreginn úr potti innsendra svara við myndagetraun maímánaðar og er því hinn heppni vinningshafi síðustu Fjallageitar. Myndin í síðustu Fjallageit var af af Færneseggjum, sem blasa við þegar komið er af Skeiðarárjökli í ferðinni Núpsstaðaskógar-Skaftafell.

5. myndagetraun Fjallageitarinnar

Myndagetraun 5

Vegna fjölda réttra svara í síðustu myndagetraunum höfum við þetta aðeins erfiðara að sinni. Ef þú kannast við fjallið skaltu senda svarið á myndagetraun@fjallaleidsogumenn.is

Úrslit verða tilkynnt í næstu Fjallageit og úr réttum svörum verður dregin jöklaganga á öskusvörtum Sólheimajökli með Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa farið nær daglega á jökulinn með ferðamenn þrátt fyrir töluvert öskufall. Fyrir þá sem þekkja jökulinn vel er það einstök upplifun að ganga á hann með alla þessa ösku og sjá sterku skilin á milli glansandi bers íss og kolbikasvartrar ösku. Að keyra um sveitina er einnig upplifun. Myndir af jöklinum eru á flickr síðu okkar.

4. myndagetraun Fjallageitarinnar

4. myndagetraun - Smellið á myndina til þess að sjá hana stærri

Þetta sérkennilega fjall er áberandi kennileiti í einni ferð okkar. Ef þú kannast við fjallið skaltu senda svarið á myndagetraun@fjallaleidsogumenn.is

Haukur Eggertsson þekkti fjallið og sendi inn svar. Að launum fær hann fjallgöngu með Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum að andvirði 22.900 kr. Haukur getur valið um klassíska ferð á Hvannadalshnjúk eða göngu á hina fáfarnari en glæsilegu Hrútsfjallstinda.

3. myndagetraun Fjallageitarinnar

3. myndagetraun - Smellið á myndina til þess að sjá hana stærri

Þessi litríka mynd er tekin í Skaftafellsfjöllum. Ljósmyndarinn stendur á eða nærri Blátindi og horfir yfir Kjósina í norður af leiðinni sem við göngum í ferð okkar á milli Núpsstaðarskóga og Skaftafells. Bratti tindurinn er Þumall, einn torkleifasti tindur landsins og hamrabeltið hægra megin er Miðfellstindur utan í Vatnajökli sem við göngum á í júní. Okkur kom mikið á óvart hve margir áttuðu sig á þessari mynd og drógum því úr fjölmörgum réttum svörum. Hin heppna og fróða að þessu sinni er Gerður Jónsdóttir og hlýtur hún ísklifur á Sólheimajökli með rútu að andvirði 24.900 kr.

2. myndagetraun Fjallageitarinnar

Myndagetraun 2

Þessi mynd var tekin við Emstrur í Laugavegsferð hjá okkur. Litla fellið á myndinni er Tuddi, en í baksýn eru Tindfjöll og þá tindarnir Ýmir og Ýma sem gnæfa hæst. Þó nokkur rétt svör bárust og við drógum úr þeim Sigríði Ágústsdóttur sem fær að launum gjafabréf upp á ísklifur á Sólheimajökli með rútu að andvirði 24.900 kr.


1. myndagetraun Fjallageitarinnar

Myndagetraun 1

Þessi mynd var tekin í ferð okkar Landmannalaugar í Vetrarham. Þessi hlíð er vestan megin í Suðurnámum og aðalleiðin inn í Landmannalaugar, hvort sem er að sumri eða  vetri. Elín V. Magnúsdóttir var ein þeirra sjö sem sendu inn rétt svar og hreppti vinninginn jöklagangu á Sólheimajökli með rútu að andvirði 19.900 kr.