Dagur1:
Þátttakendur hittast á BSÍ þar sem rútan austur í
Skaftafell leggur af stað klukkan 08:30. Leiðin liggur eftir
suðurströndinni með hefðbundnum stoppum við Seljalandsfoss, Skógafoss og
í Vík í Mýrdal áður en við komum að Kirkjubæjarklaustri þar sem við
gistum á hóteli fyrstu nóttina.Hæglega má fara í stutta gönguferð fyrir
kvöldmatinn eða hreiðra um sig á hótelinu. Kvöldverður á hótelinu.
Dagur 2:
Við yfirgefum hótelið og höldum Lakarútuna klukkan 09:30. Á
leiðinni í Laka skoðum við fyrst mögnuð gljúfur Fjaðrár og svo fossinn í
Geirlandsá, sem margir telja fegursta foss landsins, sjálfan Fagrafoss.
Komið er að Laka um hádegisbil og eftir hádegisverð í þessu heillandi
umhverfi göngum við á Laka en á toppi hans er ómótstæðilegt útsýni yfir
gígaröðina sjálfa. Leiðin liggur svo með rútunni í Tjarnargíg, einn
fallegasta gíg svæðisins. Frá Tjarnargíg hefjum við göngu dagsins og
höldum suður í Hrossatungur. Ganga um hraunflæmið er ógleymanleg enda
fjöldi gíga og hraunmynda sem ber fyrir augu. Í Hrossatungum göngum við
fram á gervigíga og graslendi og gistum í skálanum í Hrossatungum.
Akstur : 3 klst. Göngutími: 5 klst.
Dagur 3:
Trússbíllinn flytur okkur fyrsta spöl dagsins
norður að Varmá, fallegri lindá sem sprettur undan hrauninu. Við höldum
áfram á tveim jafnfljótum og stefnum á glæsilega Uxatinda og skoðum
gljúfur Skaftár undir þeim og þau undur sem þar er að finna. Við höldum
um Kambagíga að heillandi tjörnum Lyngfellsgíga þar sem eilífðin virðist
vera við völd. Við höldum svo um Kambahrygg yfir að Kamba- og
Lambavatni þar sem trússbíllinn bíður okkar og flytur okkur í
Hrossatungur.
Akstur: 30 mín Göngutími: 6 klst.
Dagur 4:
Í dag könnum við nánar hraunbreiðuna sem
myndaðist í Síðueldum 1783 – 1784. Hraunið er heillandi heimur enda ekki
allt sem sýnist og margt leynist í þessari miklu hraunbreiðu. Eftir að
hafa skoðað nægju okkar tökum við stefnuna á Blágil þar sem við gistum.
Göngutími: 5 klst.
Dagur 5:
Dagurinn hefst með því að við vöðum Hellisána
og leggjum svo á brattann á Bárðarhnúka. Í góðu veðri má njóta þaðan
óviðjafnanlegs útsýnis til hjarnbreiðu Vatnajökuls. Við höldum svo áfram
um Rauðhól og niður í austur hluta Eldhrauns að Miklafelli þar sem við
gistum í gangnamannaskála þar sem margir telja sig verða vara við
reimleika.
Göngutími: 6 – 7 klst.
Dagur 6:
Frá Miklafelli er auðveld ganga austur að
Hverfisfljóti þar sem drunur kraftmikilla fossa gefa forsmekkinn að því
sjónarspili sem bíður okkar. Við fylgjum ánni og fossafjöld hennar og
njótum þessa ótrúlega afls sem í ánni býr og stórbrotinnar
umgerðarinnar. Við ljúkum göngunni þegar við komum aftur inn í
Eldhraunið þar sem okkar bíður bíll sem flytur okkur á Hótel Laka í tæka
tíð fyrir hlaðborði kvöldsins.
Akstur: 45 mín. Göngutími: 5 – 6 klst.
Dagur 7:
Brottför frá Kirkjubæjarklaustri 09:30. Við
höldum til baka til Reykjavíkur um Fjallabak og skoðum Eldgjá og eigum
þess kost að baða okkur í Landmannalaugum áður en við komum til
höfuðborgarinnar klukkan 19:00.
Akstur : 6 stundir Göngutími: 1 – 2 klst.