Dagur 1: Ekið með áætlun í Landmannalaugar um Dómadalsleið,
norðan Heklu og hægt að njóta útsýnis til þessa óútreiknanlega eldfjalls
dágóða stund og velta fyrir sér hvaða áhrif eldgos hafa haft á land og
fólk í gegnum tíðina. Komið í Landmannalaugar um hádegisbil og upplagt
að skella sér í laugina fyrir hádegismat og áður en lagt er af stað.
Leiðin liggur fyrst um tröllslegt Laugahraunið undir litfagurri
Brennisteinsöldu upp að Stórahver og í Hrafntinnusker þar sem við gistum
fyrstu nóttina.
Göngulengd: 12km Göngutími: 4-5 klst. Gönguhækkun: 470m
Dagur 2: Úr Hrafntinnuskeri höldum við niður í Jökultungur,
framhjá Háskeðingi og Skerínefi ofan Kaldaklofs. Hveragufur stíga til
lofts og brennisteinslyktin liggur í loftinu enda erum við á einu
stærsta háhitasvæði landsins. Síðan liggur leiðin niður Jökultungur í
Álftavatn þar sem gist er.
Göngulengd: 12km Göngutími: 4-5 klst. Göngulækkun: 490m
Dagur 3: Grænt og svart eru litir dagsins og gengið um svartan
Mælifellssand þar sem fjöllin skjóta kryppum sínum iðjagrænum upp í
loftið. Stóra Súla, Hattfell og Stórkonufell ramma svartan sandinn inn á
skemmtilegan hátt og Mýrdalsjökullinn blasir við til austurs. Dagurinn
endar í Botnum þar sem gist er.
Göngulengd: 15km Göngutími: 6-7 klst. Göngulækkun: 40m
Dagur 4: Síðasti göngudagurinn ber okkur á vit gróðursins í
Þórsmörk þessarar einstæðu náttúruperlu okkar. Leiðin þangað liggur um
gljúfur og gil og sérstæðar náttúrumyndanir þar sem samspil elds og íss í
landmótun er augljóst. Síðasti tálminn á leiðinni er jökuláin Þröngá
sem stundum getur verið stríð en sjaldan ófær. Gist í Þórsmörk.
Göngulengd: 15km Göngutími: 6-7 klst. Göngulækkun: 300m
Dagur 5: Engin leið er að hverfa frá Þórsmörkinni án þess að
ganga á Valahnúk enda útsýni þaðan tilkomumikið. Gengið um Sönghelli á
þennan skógivaxna tind og haldið með áætlunarbíl til Reykjavíkur í
eftirmiðdaginn. Komið til Reykjavíkur kl 19.00
Göngulengd: 5-10km Göngutími: 2-5 klst.