Dagur 1: Hópurinn hittist á BSÍ að morgni fyrsta dags. Ekið
með áætlun í Landmannalaugar um Dómadalsleið, norðan Heklu og hægt að
njóta útsýnis til þessa óútreiknanlega eldfjalls dágóða stund og velta
fyrir sér hvaða áhrif eldgos hafa haft á land og fólk í gegnum tíðina.
Komið í Landmannalaugar um hádegisbil og upplagt að skella sér í laugina
fyrir hádegismat og áður en lagt er af stað. Leiðin liggur fyrst um
tröllslegt Laugahraunið undir litfagurri Brennisteinsöldu upp að
Stórahver og í Hrafntinnusker þar sem við gistum fyrstu nóttina.
Göngulengd: 12km Göngutími: 4-5 klst. Gönguhækkun:
470m
Dagur 2: Úr Hrafntinnuskeri höldum við niður í Jökultungur,
framhjá Háskeðingi og Skerínefi ofan Kaldaklofs. Hveragufur stíga til
lofts og brennisteinslyktin liggur í loftinu enda erum við á einu
stærsta háhitasvæði landsins. Síðan liggur leiðin niður Jökultungur í
Álftavatn þar sem gist er.
Göngulengd: 12km Göngutími: 4-5 klst. Göngulækkun:
490m
Dagur 3: Grænt og svart eru litir dagsins og gengið um svartan
Mælifellssand þar sem fjöllin skjóta kryppum sínum iðjagrænum upp í
loftið. Stóra Súla, Hattfell og Stórkonufell ramma svartan sandinn inn á
skemmtilegan hátt og Mýrdalsjökullinn blasir við til austurs. Dagurinn
endar í Botnum þar sem gist er.
Göngulengd: 15km Göngutími: 6-7 klst. Göngulækkun:
40m
Dagur 4: Í dag ber okkur á vit gróðursins í Þórsmörk þessarar
einstæðu náttúruperlu okkar. Leiðin þangað liggur um gljúfur og gil og
sérstæðar náttúrumyndanir þar sem samspil elds og íss í landmótun er
augljóst. Síðasti tálminn á leiðinni er jökuláin Þröngá sem stundum
getur verið stríð en sjaldan ófær. Gist í Þórsmörk.
Göngulengd: 15km Göngutími: 6-7 klst. Göngulækkun:
300m
Dagur 5: Við eyðum deginum í Þórsmörk þar sem við getum valið
um nokkrar gönguleiðir. Til dæmis heimsótt Sönghellir, gengið á Valahnúk
þar sem er tilkomu mikið útsýni, eða gengið inní Stakkholsgjá. Við
gistum aðra nótt í Þórsmörk.
Göngulengd: 5-10km Göngutími: 2-5 klst.
Dagur 6: Við yfirgefum Þórsmörk og förum yfir Krossá á
göngubrúnni og yfir í Goðalönd. Við höldum áfram upp göngustíginn á
Fimmvörðuháls, þar sem við göngu Kattarhryggi og njótum frábærs útsýnis
yfir Útigönguhöfða og höldum svo áfram uppá Morinsheiði. Á uppleið okkar
eru miklar líkur á að við lendum í smá snjósköflum áður en við komum að
skálanum sem er staðsettur á milli tveggja jökla, Eyjafjallajökuls og
Mýrdalsjökuls.
**Þar sem að það liggur ekki vegur alla leið upp að skálanum á
Fimmvörðuhálsi munu farþegar þurfa að sækja nauðsynlegast búnaðinn sinn í
trússbílinn, um 30 mínútna gangur hvora leið.
Göngulengd: 12-14km Göngutími: 6-7 klst. Gönguhækkun:
900m
Dagur 7: Eftir nótt á milli tveggja jökla höldum við göngunni
niður að Skógum. Við göngum um auða heiðina og fram hjá gömlum skála sem
ekki er notaður lengur. Fylgjum Skógá og virðum fyrir okkur fallega
hyli og fossa á leiðinni að hinum fræga Skógafossi. Þegar við komum að
Skógum hoppum við í rútuna sem mun flytja okkur aftur til Reykjavíkur.
Göngulengd: 12-13km Göngutími: 6-7 klst. Göngulækkun:
1000m