Dagur 1: Egilsstaðir – Stórurð – Borgarfjörður eystri
Akstur frá Egilsstöðum að Vatnsskarði þar sem við reimum skóna og
leggjum af stað að fyrsta undrastað þessarar ferðar, Stórurð. Stórurð er
einstæð náttúruperla á þröskuldi mikilfenglegra Dyrfjallanna. Við gefum
okkur góðan tíma til þess að skoða okkur um í Stórurðinni áður en við
höldum undir hamra Fjallanna yfir til Borgarfjarðar eystri þar sem við
gistum þessa fyrstu nótt.
Göngutími: 6 – 8 klst: Hækkun ~600m, lækkun
~850m.
Dagur 2: Borgarfjörður eystri – Brúnavík – Breiðavík
Frá þessu skemmtilega þorpi þar sem álfar eiga veglegan samastað höldum
við til Breiðuvíkur. Fyrsti spölurinn er eftir þjóðveginum en fyrr en
varir beygjum við inn í brekkuna og höldum eftir aldagömlum kindagötum
yfir í Brúnavík þar sem gott er að nesta sig í fjörunni. Úr Brúnavíkinni
höldum við inn dalinn og upp í Súluskarð þar sem litríkt líparítið
gleður augað. Úr Súluskarði er um nokkra kosti að velja ef halda á í
Breiðuvík og aldrei að vita nema að færi gefist til þess að ganga á
sjálfan Gletting. Það veltur þó allt á veðri og aðstæðum.
Göngutími: 7 – 9 klst. Hækkun 400m/lækkun 400m.
Dagur 3: Breiðavík – Húsavík
Við kveðjum litskrúðuga Breiðavíkina og höldum um Leirfjall niður í
Gunnhildardal og í sjálfa Húsavíkina. Ef veður og aðstæður leyfa er
aldrei að vita nema við göngum á Hvítserkinn sem teljast verður eitt
lit- og formfegursta fjall landsins. Skálinn í Húsavík er staðsettur
undir Neshálsinum og þaðan er upplagt að halda í kvöldgöngu niður að
gamla bæjarstæðinu við fjörukambinn þar sem snotra kirkju er að finna.
Húsavík var síðasti bærinn sem fór í eyði á þessum slóðum og kannski
skrýtið til þess að hugsa að þarna bjó fólk til ársins 1974.
Göngutími: 5 – 7 klst. Hækkun ~600m/lækkun ~600m.
Dagur 4: Húsavík – Loðmundarfjörður
Við byrjum daginn með því að ganga upp á Neshálsinn og ofan í
Loðmundarfjörðinn sem þótti mikil matarkista fyrr á öldum, þar bjuggu
rúmlega 100 manns um aldamótin 1900 enda stutt á gjöful fiskimið og
búsældarlegt í dalnum upp af firðinum. Við höldum um berghlaupið
Loðmundarskriður sem eru merkilegt náttúrufyrirbæri áður en staðar er
numið við kirkjustaðinn Klyppstað þar sem við gistum í glæsilegum skála
þessa síðustu nótt ferðarinnar.
Göngutími: 5 – 7 klst. Hækkun 600m/lækkun 600m.
Dagur 5: Loðmundarfjörður – Seyðisfjörður – Egilsstaðir
Þessi síðasti göngudagur liggur um Hjálmárdalsheiðina, gömlu þjóðleiðina
yfir til Seyðisfjarðar. Þegar upp á háheiðina er komið koma
fjallatindar suðurfjarðanna í ljós og sjálfur Seyðisfjörðurinn sem er
ansi frábrugðinn litlu fjörðunum og víkunum sem við höfum gengið um
síðustu daga, langur þröngur og með sín tilkomumiklu fjöll að
sunnanverðu. Um að gera að njóta útsýnisins áður en haldið er niður á
við. þegar komið er niður á þjóðveg er þessi ganga að baki og við getum
sest í rútu sem ekur okkur til Egilsstaða.
Göngutími: 5 – 7 klst. Hækkun ~600m/lækkun ~600m.