Vatnajökull að vorlagi - IMG51

IMG_4895.JPG

Hápunktar

  • 9 daga skíðaganga um hjarnbreiður Vatnajökuls
Verð frá299.000 kr.

Níu daga skíðagönguferð að vorlagi um stærsta jökul landsins, farið upp frá Jökulheimum, um Grímsvötn og á Öræfajökul.

Níu daga skíðagönguferð um stærsta jökul landsins, farið upp frá Jökulheimum, um Grímsvötn og á Öræfajökul. Farangur er dreginn á sleðum (púlkum) sem eru mjög léttar í drætti fyrir þetta stutta ferð. Gist er í tjöldum og skálum. Á þessum tíma geta andstæður vetrarríkisins á jökli og vorsins sem teygir sig upp af láglendinu skapað einstakan kynjaheim, baðaðan í miðnætursólinni.

Dagleiðir: 7 - 9 klst.
Gönguvegalengd: 130 - 150 km.
Gönguhæð: 850 - 2000 m.y.s.
Mesta hækkun:Myndir frá leiðangri sumarið 2010 teknar af Bernd Ruddat er hægt að sjá hér 750 m.

Búnaðarlisti

Innifalið : Leiðsögn og fararstjórn, akstur til og frá Reykjavík, skálagjöld, allur matur í ferðinni, tjöld, sameiginlegur útbúnaður og eldunaráhöld. 6-12 í hóp.
Aukagjald: Fyrir 4-5 manna hóp, 25.000ISK á mann.
Hafa í huga : Kvöldið fyrir bröttför er fundur með leiðsögumanni þar sem farið er yfir búnað og ferðaáætlunina.
Upphafsstaður : Reykjavík.



Difficulty level
IMG_4895.JPG

Hápunktar

  • 9 daga skíðaganga um hjarnbreiður Vatnajökuls
Verð frá299.000 kr.

Dagur 0: Kvöldið fyrir ferðina er fundur með leiðsögumanni í Reykjavik þar sem farið er yfir útbúanð og ferðalýsingu.

Dagur 1: Ekið í Jökulheima við vesturjaðar Vatnajökuls. Gengið af stað í átt að jökulbrúninni og hugsanlega náum við að ganga á jökli þennan fyrsta dag ferðarinnar. Gist í tjöldum.

Dagur 2 og 3: Gengið upp jökulin, þvert yfir hvítar víðáttur Vatnajökuls, að Grímsvötnum, tilkomumikilli og spennandi eyju í íshafinu. Gist seinni nóttina í skálanum í Grímsvötnum.

Dagur 4: Í dag gefst færi á að kanna nánar mikilúðlegt umhverfi Grímsvatna og njóta vistar í huggulegum skálanum á Grímsfjalli. 

Dagur 5, 6 og 7: Leiðin suður eftir hálsinum sem tengir Öræfajökul við meginjökulinn er lítillega er á fótinn en útsýnið við bestu aðstæður fær alla til þess að gleyma erfiðinu. Brölt upp á Hvannadalshnúk, 2110 m yfir sjávarmáli. Gist í tjöldum, síðustu nóttina á hásléttunni sem fyllir toppgíg þessa mikilúðlega eldfjalls. Stefnan sett niður á Sandfellsheiðina í lok sjöunda dags.

Dagur 8: Hugsanlega gengur allt eins og í sögu og þá skíðar hópurinn niður Sandfellsheiðina á áttunda degi og kemst þá auðveldlega til Reykjavíkur samdægurs.

Dagur 9: Öryggisdagur sem ætlað er að nýta verði veður eða færð tafsamari en áætlun gerir ráð fyrir. Ekið til Reykjavíkur í lok ferðar.

IMG_4895.JPG

Hápunktar

  • 9 daga skíðaganga um hjarnbreiður Vatnajökuls
Verð frá299.000 kr.
Veldu fjölda farþega og brottfarardag hér fyrir og svo á reikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0 kr.
IMG_4895.JPG

Hápunktar

  • 9 daga skíðaganga um hjarnbreiður Vatnajökuls
Price from:299.000 kr.
Brottfarardagur Laust ?

Myndasafn

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN