Grænland - Liverpoolland, fjallaskíðaferð - IMG60

P1010049.JPG

Hápunktar

  • Alvöru fjallaskíða/telemark ferð í stórkostlegu landslagi
  • Skíðað á milli fjallstinda og fjöruborðs
Verð frá 495.000 kr.

Fjallaskíðaferð til Liverpoollands á Norðaustur Grænlandi

Í maí mánuði bjóða Íslenskir fjallaleiðsögumenn upp á spennandi skíðaferð til Liverpoollands á Norðaustur Grænlandi. Hér er á ferð krefjandi fjallaskíða/telemark ferð þar sem glímt er við helstu tinda Liverpoollands.  Farið er með hundasleðum upp í fjallasvæði Liverpoollands þar sem slegið verður upp tjaldbúðum. Úr tjaldbúðum er svo farið í dagsferðir ýmist á nálæga tinda eða skíðað niður að sjávarmáli þar sem gríðarstórir borgarísjakar eru frosnir inn í lagnaðarísinn. Frábær fjallaskíðaferð á fáfarinni austurströnd Grænlands þar sem sólin skín allan sólarhringinn.



Innifalið : Leiðsögn og fararstjórn, Flug til Grænlands og baka með flugvallarsköttum, þyrluflug til Ittoqqortoormiit, gisting á gistiheimili í Ittoqqortoormiit eftir skíðaferð, hundasleðaflutningur á fólki og farangri, svefntjöld og matartjald, mataráhöld og allur matur að undanskilinni lokamáltíð á Grænlandi.
Aukagjald: fyrir 4 til 5 manna hóp, 50.000kr. á mann. 
Ekki innifalið : Personal equipment, insurance and expenses, dinner the last night in Greenland.
Upphafsstaður : Ferðin hefst og endar á flugvellinum í Reykjavik.



Difficulty level
P1010049.JPG

Hápunktar

  • Alvöru fjallaskíða/telemark ferð í stórkostlegu landslagi
  • Skíðað á milli fjallstinda og fjöruborðs
Verð frá 495.000 kr.
Dagur 1: Flogið frá Reykjavík til Constable Point á Austur Grænlandi. Þaðan tökum við áætlunarþyrluna til Ittoqqortoormiit, litskrúðugs 600 manna grænlensks þorps sem stendur við mynni Scoresby Sunds, stærsta fjarðar í heiminum. Eftir stutt stopp í þorpinu leggjum við af stað með hundasleðum inn á Liverpoolland. Við nemum staðar í uþb 700 metra hæð nánast í miðju Liverpoollands og sláum upp tjöldum áður en fyrsti tindurinn er klifinn og forsmekkurinn af skíðun næstu daga kemur í ljós.
Dagar 2-6: Þessa daga förum við í fjölbreyttar skíðaferðir þar sem hægt er að velja um fjölda skíðaleiða í ómótstæðilegu landslagi. Roscoe fjöllin, syðsti hluti Liverpoollands er kjörinn fyrir fjallaskíðaferðir. Nálægt tjaldbúðunum eru hæstu fjöll Liverpoollands, Krosbjerg 1400 metra hátt og Tvillingerne 1430 metra hátt. Fjallstindarnir liggja þétt saman þannig að á afmörkuðu svæði má finna ótal skíðaleiðir af ölíkum erfileikastigum og aðeins lítill hluti þeirra hefur verið skíðaður.
Dagur 7: Um morguninn pökkum við farangrinum saman áður en við höldum í skíðaferð dagsins. Eftir að hafa gengið á nálægan tind er skíðað niður að sjávarmáli. Þar bíða hundasleðarnir með farangur hópsins tilbúnir að draga okkur til byggða þar sem slegið er upp veislu um kvöldið. Fyrir þá úthaldsbestu er tilvalið að skella sér á grænlenskt sveitaball um kvöldið.
Dagur 8: Um morguninn förum við í skoðunarferð um Ittoqqortoormiit, áður en við tökum þyrluna á flugvöllinn í Constable Point þaðan sem við fljúgum heim til Íslands.
P1010049.JPG

Hápunktar

  • Alvöru fjallaskíða/telemark ferð í stórkostlegu landslagi
  • Skíðað á milli fjallstinda og fjöruborðs
Verð frá 495.000 kr.

Þjónustur

  • Double room in a guesthouse in Reykjavík with p.u. and d.o. - 15.000 ISK
  • Single room in a guest house in Reykjavík with p.u. and d.o. - 20.500 ISK
  • Pick up/drop off from/to guesthouse at the beginning/end of the tour - 4.000 ISK
Veldu fjölda farþega og brottfarardag hér fyrir og svo á reikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0 kr.
P1010049.JPG

Hápunktar

  • Alvöru fjallaskíða/telemark ferð í stórkostlegu landslagi
  • Skíðað á milli fjallstinda og fjöruborðs
Price from: 495.000 kr.
Brottfarardagur Laust ?

Myndasafn

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN