Grænland - Á slóðum Eiríks Rauða - IMG70

IMG_0784-48-47.jpg

Hápunktar

  • Stórkostlegt landslag
  • Sambland af göngu og siglingum
Verð frá349.000 kr.

Magnað tækifæri til þess að hverfa aftur í tíman á söguslóðir Eiríks Rauða og kynnast um leið heillandi menningu Grænlands


Í júlí og ágúst bjóða Íslenskir Fjallaleiðsögumenn upp á spennandi 8 daga ferð um suðurhluta Grænlands þar sem skyggnst er um á fornum slóðum norrænna manna. Suður Grænland er trúlega sá hluti Grænlands sem býður upp á mesta fjölbreytni í landslagi á heildina litið, jökulheima, heiðalönd, hátinda, firði og fjörur. Í ferðinni göngum við um fjöll og heiðar, fjörur og fjárgötur við rætur stærsta jökuls heims, Grænlandsjökuls. Mikilfenglegir skriðjöklar ganga út úr meginjöklinum og kelfa í sjó fram. Ísjakar lóna á bláum haffleti fjarðanna og einstaka selur skýtur upp kolli. Á meðan við skyggnumst í búskaparhætti nútímans er vert að hugleiða söguna og afdrif norrænna manna á þessum slóðum sem hurfu á dularfullan hátt, þurrkuðust hreinlega út úr sögubókunum. Fyrir áhugafólk um stangveiði bjóðast möguleikar til sjóbleikjuveiða en sjóbleikju er víða að finna, væna og í miklu magni. Þetta er gönguferð í hæsta gæðaflokki um óviðjafnanlegt svæði þar sem við styttum okkur þó stundum leið með því að stökkva um borð í báta með heimafólki.

Innifalið : Íslensk fararstjórn Flug til og frá Íslandi Öll gisting eins og fram kemur í leiðarlýsingu Allur matur Allur flutningur á fólki og farangri eins og fram kemur í leiðarlýsingu
Ekki innifalið : Persónulegur búnaður samkvæmt búnaðarlista Drykkir og annað Kvöldmáltíð síðasta kvöldið ef snætt er af hlaðborði Hotel Narsarsuaq Ferða-, slysa-, og farangurstrygging Útbúnaður til stangveiða Önnur þjónusta/afþreying sem ekki er tekin fram í dagskrá
Hafa í huga : Hópastærð 8 - 12 manns
Upphafsstaður : Reykjavíkurflugvöllur.



Difficulty level
IMG_0784-48-47.jpg

Hápunktar

  • Stórkostlegt landslag
  • Sambland af göngu og siglingum
Verð frá349.000 kr.

Dagur 1: Flogið frá Reykjavík til Narssarsuaq Við göngum niður að höfn og tökum bát yfir til Qagssiarssuq, Bröttuhlíðar þar sem við komum okkur fyrir á gistiheimili staðarins. Eftirmiðdagsganga um þessar merku söguslóðir þar sem við skoðum m.a. Eiríksstaði og Þjóðhildarkirkju. Gist á gistiheimili og allur farangur er trússaður. Göngutími 2 – 3 klst.

Dagur 2: Við kveðjum Bröttuhlíð og höldum vestur til Tasiusaq, Við fylgjum fjölda stöðuvatna þar sem jafnan má sjá silunga vaka og virða fyrir sér fjölskrúðugt fuglalíf svæðisins. Þetta er létt ganga og í Tasiusaq komum við okkur fyrir hjá grænlenskum ferðaþjónustubónda og snæðum svo hádegisverð áður en við höldum í könnunarferð um nágrennið. Allur farangur trússaður. Göngutími 6 – 7 klst. Veiðimöguleikar í fallegri, lítilli á seinni part dags.

Dagur 3: Við göngum í dag yfir til Nunataaq. Leiðin liggur um fjárgötur og víða má sjá leifar af hleðslum og vegbótum þeim sem norrænir menn unnu að forðum. Eftir stutta göngu komum við til Nunataaq þar sem við komum okkur fyrir hjá öðrum bónda áður en við höldum í skoðunarferð. Við göngum upp á heiðina Nunakullak þar sem stórkostlegt útsýnið á eftir að koma á óvart. Við horfum yfir fjörðinn Tasiusaarsuk sem er lítill innfjörður. Þar sem fjörðurinn er þrengstur er kjörið að nema staðar og snæða í þessu óviðjafnanlega útsýni og drekka fegurðina í sig um leið. Sjónarspilið er stórkostlegt: misstórir ísjakar á reki fram og til baka, oft á talsverðri ferð þegar flæðir að og frá. Sem fyrr er allur farangur er trússaður. Göngutími 6 klst. Veiðimöguleikar í sjó, stutt frá gististaðnum.

Dagur 4: Frá Nunataaq liggur leiðin til Igaliku, hins forna biskupsseturs Garða. Fyrst göngum við yfir grónar heiðar með fjölda lítilla fjallavatna til þorpsins Sillisit. Þaðan tökum við svo bát yfir til Itilleq. Frá Itilleq göngum við eftir Konungsveginum, yfir eiðið til Garða þar sem við komum okkur fyrir á farfuglaheimili. Garðar eru afskaplega vel í sveit settir á grösugu láglendi innst í Einarsfirði. Tígulegur tindur Illerfissalik sem gnæfir, handan fjarðar setur svo sannarlega svip sinn á bæjarbraginn. Allur farangur trússaður. Göngutími 7 klst. Veiðimöguleikar um kvöldið í á sem er uþb 2 km. frá gistihúsinu.

Dagur 5: Daginn notum við til þess að kynnast betur hinu stórfenglega umhverfi norðan við Garða. Við fylgjum ánni úr Vatni 90 upp á hásléttuna sem er í rúmlega 200m hæð. Við njótum tilkomumikils útsýnis yfir Qooqqut fjörðinn en í botni hans er skriðjökull sem kelfir í sjó fram og fjörðurinn því jafnan fullur af borgarísjökum. Þegar við höfum fengið okkur fullsödd af þessu óviðjafnanlega útsýni snúum við til baka og þræðum brúnir sléttunnar til Igaliku þar sem við gistum aftur á farfuglaheimilinu. Göngutími 8 klst. Veiðimöguleikar í ánni úr Vatni 90.

Dagur 6: Í dag skundum við á söguslóðir og skoðum okkur um í Hvalsey. Í stað þess að leggja land undir fót teygjum við úr skönkunum um borð í báti sem flytur okkur á milli Garða og Hvalseyjar. Við njótum bátsferðarinnar frá Görðum og virðum fyrir okkur tilkomumikil fjöllin beggja vegna við Einarsfjörðinn. Við höfum nægan tíma til þess að rölta um rústir þessara söguslóða en hér í Hvalsey er að finna heillegasta mannvirki sem norrænir menn skildu eftir sig. Við höldum svo til höfuðstaðar S. Grænlands Qaqortok, sem hefur það orð á sér að vera fallegasti bærinn á öllu Grænlandi. Hérna í Qaqortok gistum við á farfuglaheimilinu og getum notað eftirmiðdaginn og kvöldið til þess að skoða okkur um. Göngutími 2 – 3 klst. veiðimöguleiki fyrir fótfráa í Tasersuaq vatninu seinni hluta dagsins og um kvöldið.

Dagur 7: Í dag stígum við aftur um borð í bát og nú er ferðinni heitið til baka til Narsarsuaq. Við siglum norður Eiríksfjörðinn og getum látið hugann reika til dagleiða liðinna daga á meðan við njótum mikilfenglegs útsýnisins. Við komum til Narsarsuaq komum við okkur fyrir á farfuglaheimilinu og eigum svo frjálsan tíma það sem eftir er dags. Um kvöldið er upplagt að kynna sér grænlenska matarhefð og menningu og val fyrir hópinn að bragða á þjóðarréttum Grænlendinga af hlaðborði hótelsins.

Dagur 8: Við tökum saman föggur okkar í dag og höldum heim en áður en við kveðjum Grænland göngum við inn að Kuussuup Serma jöklinum. Leiðin liggur um grónar grundir Blómsturdals sem eru geysilegar andstæður við hrjóstur jökulsins. Útsýnið yfir jökulinn er ógleymanlegt og eflaust hægt að eyða heilli dagstund þar en enginn má verða of seinn í flug og því fáum við bíl til þess að ná í okkur inn að jökli. Flogið heim. Göngutími 3 – 4 klst.

IMG_0784-48-47.jpg

Hápunktar

  • Stórkostlegt landslag
  • Sambland af göngu og siglingum
Verð frá349.000 kr.

Þjónustur

  • Double room in a guesthouse in Reykjavík with p.u. and d.o. - 20.000 ISK
  • Single room in a guesthouse in Reykjavík with p.u. and d.o. - 28.500 ISK
  • Pick up/drop off from/to guesthouse at the beginning/end of the tour - 4.000 ISK
  • Double room in a three-star hotel in Reykjavík with p.u. and d.o.- 29.000 ISK
  • Single room in a three-star hotel in Reykjavík with p.u. and d.o.- 46.500 ISK
Veldu fjölda farþega og brottfarardag hér fyrir og svo á reikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0 kr.
IMG_0784-48-47.jpg

Hápunktar

  • Stórkostlegt landslag
  • Sambland af göngu og siglingum
Price from:349.000 kr.
Brottfarardagur Laust ?
26.07.2012 Staðfest ferð

Myndasafn

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN