Dagur 1: Flogið frá Reykjavík til Kulusuk og svo
stígum við um borð í bát sem flytur okkur til Tasiilaq, höfuðstaðar
Ammassalikeyjunnar. Við stöldrum aðeins við í bænum og virðum fyrir
okkur mannlífið áður en við öxlum pokana okkar og leggjum upp í hina
eiginlegu gönguferð. Fyrsta dagleiðin verður þó ekki löng, því í botni
Tasiilaq fjarðarins sláum við upp tjöldunum og þeir sem tóku
veiðistöngina með geta hugað að silungi annað hvort í fjöruborðinu eða í
nærliggjandi vatni eða á.
Dagur 2: Í dag höldum við á vit vatna og fjalla. Við höldum
hina svokölluðu Vatnaleið, fylgjum Qortolotoq vötnunum sem liggja í röð á
millri mikilfenglegra granítfjallanna sem eru svo gjörólík íslensku
fjöllunum. Vestan megin gnæfir Mittivakkat jökullinn við himin og þegar
dregur nær kvöldi sláum við upp tjöldum við eitt af innstu vötnunum.
Dagur 3: Við höldum áfram göngu okkar um þetta óviðjafnanlega
svæði og tökum stefnuna í vestur, í átt að Sermilik firðinum. Við höldum
yfir skarð þar sem jökulsorfið stórgrýtið skapar ævintýralega umgjörð.
Við fylgjum svo jaðri Mittivakkat jökuls og þverum annað hvort litla
skriðjökulstungu eða við frískum upp á tærnar og vöðum ána sem á upptök
sín í skriðjöklinum. Skömmu síðar komum við í gróið dalverpi þar sem við
tjöldum.
Dagur 4: Í dag tökum við stefnuna niður að Sermilikfirði og
þræðum mishæðótt landið, þar sem jökulsorfnar klappir og gróið land
skiptist á. Sermilikfjörður er mikilfenglegur af hæðarbrúnunum, fullur
af stórum borgarísjökum sem lóna í vatnsborðinu. Nokkuð vatnsmikil
jökulá rennur út í fjörðinn og þarf að gæta sjávarfalla til þess að vaða
hana í fjörunni. Ef veður leyfir tjöldum við í hvítum sandi fjörunnar
og njótum þessa ómótstæðilega útsýnis, risavaxnir borgarísjakar á bláum
haffletinum.
Dagur 5: Við snúum baki við fjörunni og höldum á ný til
fjalla. Förum nú Sermilikveginn, hina hefðbundnu leið veiðimannanna.
Leiðin liggur um þröngt fjallaskarð og svo niður með dal girtum bröttum
tindum á báða bóga. Í dalbotninum er fjöldi vatna og við veljum okkur
eitt til að tjalda við með óviðjafnanlegu útsýni yfir Tasilaq-fjörðinn.
Dagur 6: Við erum ekki langt frá Tasiilaq og eftir létta göngu
komum við til bæjarins. Nú gefst okkur kostur á langþráðu steypibaði
því við ætlum að gista á gistihúsi þessa síðustu nótt okkar á
Ammassalik. Við höfum nægan tíma til þess að skoða mannlífið það sem
eftir lifir dags og upplagt að koma við á safni bæjarins eða í kirkjunni
þá er heldur ekki amalegt að kíkja í kaupfélagið eða litlu bókabúðina
þar sem ýmislegt fleira en bækur er á boðstólum.
Dagur 7: Við tökum daginn snemma og höldum með bát til
Kulusuk. Við höfum tíma til þess að skoða okkur um í þorpinu í Kulusuk
þar sem langflestir íbúar fást við veiðar. Eftir hádegið fljúgum við svo
til Reykjavíkur þar sem lent er undir kvöld.