Dagur 0: Kvöldið fyrir ferðina er fundur með leiðsögumanni í Reykjavik þar sem farið er yfir útbúanð og ferðalýsingu.
Dagur 1: Ekið í Jökulheima við vesturjaðar Vatnajökuls. Gengið
af stað í átt að jökulbrúninni og hugsanlega náum við að ganga á jökli
þennan fyrsta dag ferðarinnar. Gist í tjöldum.
Dagur 2 og 3: Gengið upp jökulin, þvert yfir hvítar víðáttur
Vatnajökuls, að Grímsvötnum, tilkomumikilli og spennandi eyju í
íshafinu. Gist seinni nóttina í skálanum í Grímsvötnum.
Dagur 4: Í dag gefst færi á að kanna nánar mikilúðlegt umhverfi Grímsvatna og njóta vistar í huggulegum skálanum á Grímsfjalli.
Dagur 5, 6 og 7:
Leiðin suður eftir hálsinum sem tengir Öræfajökul við meginjökulinn er
lítillega er á fótinn en útsýnið við bestu aðstæður fær alla til þess að
gleyma erfiðinu. Brölt upp á Hvannadalshnúk, 2110 m yfir sjávarmáli.
Gist í tjöldum, síðustu nóttina á hásléttunni sem fyllir toppgíg þessa
mikilúðlega eldfjalls. Stefnan sett niður á Sandfellsheiðina í lok
sjöunda dags.
Dagur 8: Hugsanlega gengur allt eins og í sögu og þá skíðar
hópurinn niður Sandfellsheiðina á áttunda degi og kemst þá auðveldlega
til Reykjavíkur samdægurs.
Dagur 9: Öryggisdagur sem ætlað er að nýta verði veður eða færð tafsamari en áætlun gerir ráð fyrir. Ekið til Reykjavíkur í lok ferðar.