Sprengisandur - þvert yfir hálendið! - IMG52

101_0140.jpg

Hápunktar

  • 10 daga skíðaganga þvert yfir hálendið
  • nauðsynlegur undirbúningur fyrir Grænlandsjökul
Verð frá259.000 kr.

Mjög krefjandi ganga á skíðum þvert yfir hálendið. Mögnuð upplifun sem er ekki síst til þess fallin að uppgötva persónulega eiginleika.

Landslagið lætur engan ósnortinn, veður geta verið með öllu móti og ýmsar hindranir geta skotið upp kollinum fyrirvaralaust. Farangur er dreginn á sleðum (púlkum) enda þarf fullorðinn búað fyrir slíka ferð. Gist er í tjöldum og skálum. Lengri dagleiðirnar geta kallað á notkun "fjallhífa", sérstakrar ferðatækni sem krefst æfingar og hægt er að æfa sig í á leiðinni.

Fyrir þá sem vilja ganga yfir Grænlandsjökul er ferð sem þessi nauðsynlegur undirbúningur en ferðin er einnig opin öllum þeim sem hafa áhuga á gönguskíðaferðum hérlendis.

Dagleiðir: 7 - 9 klst.
Gönguvegalengd: 220 Km.
Gönguhæð: 600 - 1100 m.y.s.
Mesta hækkun: 900 m.

Búnaðarlisti

Innifalið : Leiðsögn og fararstjórn, flug til Akureyrar og akstur inn í Eyjafjörð, akstur til Reykjavíkur frá Sigöldu, skálagjöld, allur matur í ferðinni, tjöld, púlkur, sameiginlegur útbúnaður og eldunaráhöld. 
AukagjaldFyrir 4-5 manna hóp, 25.000kr. á mann.
Hafa í huga : Kvöldið fyrir bröttför er fundur með leiðsögumanni þar sem farið er yfir búnað og ferðaáætlunina.
Upphafsstaður : Reykjavík



Difficulty level
101_0140.jpg

Hápunktar

  • 10 daga skíðaganga þvert yfir hálendið
  • nauðsynlegur undirbúningur fyrir Grænlandsjökul
Verð frá259.000 kr.

Dagur 0: Farið yfir búnað of ferðaáætlun með leiðsögumanni.

Dagur 1 og 2: Ferðin hefst með flutningi fólks og farangurs til Akureyrar og "fram í Fjörð". Gengið er upp á hásléttuna úr innanverðum Eyjafirði, síðan er haldið að Laugafelli, þar sem laugin og upphitaða salernisskálin eiga eftir að vekja mikla lukku. Gist í tjöldum fyrri nóttina, skálagisting þá seinni.

Dagur 3 og 4: Frá Laugafelli höldum við um hæðadrög Sprengisands og liggur leiðin í Nýjadal eða Jökuldal undir hnarreistum Tungnafellsjöklinum. Gist í tjöldum fyrri nótt og skálagisting þá seinni.

Dagur 5 og 6: Skálarnir í Nýjadal kvaddir og haldið af stað um suðurhluta Vonarskarðs í Jökulheima. Sérstakt andrúmsloft og magnað útsýni á þessum afviknu slóðum. Gist í tjöldum fyrri nóttina og skála þá seinni.

Dagur 7 og 8: Frá Jökulheimum er annaðhvort farið í Veiðivötn eða farið niður eftir Tungnaá og þaðan í Landmannalaugar. Þar er engin hætta á öðru en að heitt slökunarbað í lauginni verði metið að verðleikum. Tjaldgisting fyrri nótt og skálagisting þá seinni

Dagur 9: Öryggisdagur, komi eitthvað uppá í sambandi við veður eða færð.

Dagur 10: Á síðasta degi er gengið úr Landmannalaugum að Sigöldu þar sem vélknúið farartæki bíður þátttakenda og flytur þá í ys og þys Reykjavíkur.

101_0140.jpg

Hápunktar

  • 10 daga skíðaganga þvert yfir hálendið
  • nauðsynlegur undirbúningur fyrir Grænlandsjökul
Verð frá259.000 kr.

Þjónustur

  • Single room in a guesthouse in Reykjavík - 16.500 ISK
  • Double room in a guesthouse in Reykjavík - 11.000 ISK
Veldu fjölda farþega og brottfarardag hér fyrir og svo á reikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0 kr.
101_0140.jpg

Hápunktar

  • 10 daga skíðaganga þvert yfir hálendið
  • nauðsynlegur undirbúningur fyrir Grænlandsjökul
Price from:259.000 kr.
Brottfarardagur Laust ?

Myndasafn

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN