Dagur 1: Reykjavík - Sigalda - Landmannalaugar
- Við ökum frá Reykjavík um virkjanasvæðið í kringum Hrauneyjar og að Sigöldu, 23 kílómetrum frá Landmannalaugum. Hér setjum við á okkur skíðin og göngum í átt að Landmannalaugum. Leið okkar liggur um Bjallahraun, Hnausagil, Frostastaðavatn. Þegar í skálann er komið komum við okkur vel fyrir með þann farangur sem bíður okkar þar. Að sjálfsögðu skellum við okkur í laugina um kvöldið aðeins um 100 metra frá skálanum.
- Akstur: 3 klst. Skíðaganga: 6 klst. Hæðarmismunur: 100m
Dagur 2: Ljótipollur - Landmannalaugar
- Við skoðum risagíginn Ljótapoll sem varð til í eldsumbrotum á 15. öld. Hiti í kring um pollinn ætti að halda litríkum hlíðum hans snjólausum.
- Skíðaganga: 5 klst. Hæðarmismunur: 100m
Dagur 3: Stórihver - Hrafntinnusker - Landmannalaugar
- Hér tökum við fyrsta legginn af hinum vinsæla Laugavegi. Við höldum í átt að Hrafntinnuskeri og skoðum Brennisteinsöldu, Stórahver og íshellinn við Hrafntinnusker.
- Skíðaganga: 6 klst. Hæðarmismunur: 550m
Dagur 4: Hattur - Skalli - Landmannalaugar
- Af Hatti og Skalla má sjá einstakt útsýni yfir Torfajökul og Jökulgil. Við erum í mikilli hæð hér og ef útsýnið er gott sjáum við yfir stóran hluta landsins.
- Skíðaganga: 5 klst. Hæðarmismunur: 600m
Dagur 5: Vondugil - Suður Námur - Landmannalaugar
- Við rennum okkur um Vondugil og upp á fjallið Suður Námur þar sem útsýnið getur verið stórfenglegt.
- Skíðaganga: 5 klst. Hæðarmismunur: 400m
Dagur 6: Landmannalaugar - Sigalda - Reykjavík
- Að 6 ánægjulegum dögum loknum tökum við beint strik aftur að Sigöldu þar sem bíllinn bíður okkar með allan okkar farangur. Við komum til Reykjavíkur seinnipart dagsins.
- Skíðaganga: 6 klst. Hæðarmismunur: 100m Akstur: 3 klst.