Dagur 1. Reykjavík – Kulusuk:
Flogið til Kulusuk
þar sem lent um hádegisbil. Við spennum á okkur skíðin um leið og við
komum út úr flugstöðinni og höldum á gistiheimili í þorpinu þar sem við
dveljum allan tímann. Þegar búið er að ganga frá farangri er haldið í
létta skíðagöngu um vesturhluta eyjarinnar. Sjálft þorpið og umhverfi
þess skoðað í krók og kring. ~ 3 klst á skíðum.
Dagur 2. Apusiaajik eyja:
Við
skíðum yfir sundið sem skilur Kulusuk frá Apusiaajik eyju og virðum
fyrir okkar stórkostlega borgarísjaka sem sitja fastir í ís sundsins.
Þegar komið er yfir að Apusiajiik er gengið upp á flatan jökul í um 300m
hæð. Þaðan er gengið á milli stórkostlegra 900 m hárra graníttinda með
frábæru útsýni yfir á meginlandið og nálægar eyjar. Til baka er skíðað
um þröngan fjörð aftur til Kulusuk. Þetta er skíðagöngudagur sem á fáa
sína líka. ~ 7 til 8 klst. á skíðum
Dagur 3. Cap Dan:
Skíðaganga
þvert yfir Kulusukeyju yfir á Cap Dan þar sem eitt sinn var radarstöð.
Þar er gríðarlega gott útsýni til allra átta. Magnaðir oddhvassir
graníttindar sjást svo langt sem augað eygir og hafís og borgarísjakar
þekja yfirborð hafsins. Ómótstæðileg og falleg stemning sem líður seint
úr minni. ~ 6 klst. á skíðum
Dagur 4. Kulusuk – Reykjavík:
Við
tökum daginn snemma og skíðum nú um norðurströnd Kulusukeyjarinnar. Enn
og aftur njótum við fegurðar gríðarstórra borgarísjaka sem hafa
strandað í sundunum við Kulusuk og þessarar óræðu kyrrðar sem ríkir á
snæbreiðunum. Nú er um að gera að drekka í sig hughrifin því eftir að
hafa náð í farangurinn liggur leiðin heim. ~ 3 klst ganga á skíðum.