Dagur 1: Ferðin hefst í Nýjadal
við Tungnafellsjökul og gengið upp Jökuldal hinn Nýja. Þegar
líparítsvæði Vonarskarðs virðist innan seilingar er tjaldað í nágrenni
við snotur hverasvæði. Tjald.
Dagur 2: Vonarskarð er fornt örnefni á þessum
slóðum, þó ekki sé vitað hvort það hafi upprunalega verið haft yfir
þetta skarð á milli Tungnafellsjökuls og Köldukvíslarjökuls. Skarðið er
litskrúðugt með afbrigðum og vona ætti í lengstu lög að skyggni gefi
færi á að sjá dýrðina. Gengið er suður skarðið að Köldukvíslarjökli og
síðan áfram meðfram honum. Vaðið og reynt að finna snjóbrýr og
jökulspangir yfir fyrstu kvíslarnar. Tjaldað við jökulsporðinn.
Dagur 3: Megnið af deginum fer í að ganga yfir
sporð Köldukvíslarjökuls. Handan hans bíður áin Sveðja, einn af
erfiðari farartálmum ferðarinnar, sem vaða þarf og getur reynst
snúið síðla dags. Tjaldað í námunda við Bryðju, í dálítilli gígskál sem
veitir gott skjól fyrir hugsanlegum sviptivindum af jökli. Tjald.
Dagur 4: Leiðin liggur með Hágönguhraunum og
snotrum gígaröðum í Tröllahrauni niður að Tungnaárbotnum, síðan með
Jökulgrindum og Tungnaárjökli að Jökulheimum, eina "byggða" bólinu í
ferðinni. Langur dagur um eina hrjóstrugustu eyðimörk landsins. Skáli.
Dagur 5: Tungnaá er vaðin, sem útheimtir bæði
sérstaka tækni og nokkurn tíma. Stefnan sett á milli jökuls og
Grænafjallgarðs/Tungnaárfjalla. Allt í einu stöndum við frammi fyrir
einni af óviðjafnanlegri perlu íslenskrar náttúru; Langasjó með
Fögrufjöll/Skaftárfjöll sér að baki. Gengið er fyrir norðurenda vatnsins
og síðan um enda fjallgarðsins að Útfalli sem þarf að vaða áður en
tjaldað er í Grasveri. Tjald.
Dagur 6: Haldið suður Fögrufjöll með Langasjó.
Ótal gígar og vötn gefa fjallgarðinum skemmtileg form og andstæður í
litum halda augum við efnið. Í lok dags er gengið hjá Sveinstindi og
haldið niður með Skaftá. Tjaldað er við Hvanngil, í grennd við Uxatinda
og hina sérstöku Kamba handan árinnar. Tjald.
Dagur 7: Síðasti leggur ferðarinnar er um
Uxatinda og á barmi Skaftárgljúfursins sunnan þeirra. Landslagið líkist æ
meira völundarhúsi, gröfnu í þykk gjóskulög upprunnin úr Eldgjá þessari
gríðarlegu gossprungu sem gengið er niður með síðasta hluta ferðarinnar
í Lambaskarðshóla. Þar ætti að vera hægt að ná síðdegisrútunni sem fer á
Klaustur, nú eða tjalda og halda upp á ferðarlok.