Dagur 1: Mæting er við bækistöð Íslenskra Fjallaleiðsögumanna í
Skaftafelli kl. 08:00. Ekið frá Skaftafelli í Núpsstaðarskóga þar sem
gangan hefst þegar fólk hefur notið skóganna og kynjamynda við
Tvílitahyl eftir því sem hugur stendur til. Gengið er meðfram
stórkostlegum gljúfrum Núpsár sem víða eru yfir 100 metra djúp. Tjaldað
rétt ofan við Skessutorfugljúfrin (efsta hluti Núpsárgljúfra) þar sem
fálki og refir ráða ríkjum.
Dagur 2: Í dag er gengið um heiðalöndin alla leið inn undir jökul,
fyrir enda Grænalóns og tjaldað austarlega í Grænafjalli á gömlum
vatnahjalla þaðan sem gott útsýni er yfir Skeiðarárjökul og Grænalón. Ef
tími vinnst til og aðstæður leyfa er farið í skoðunarferð að ölkeldunum
í Taumagili.
Dagur 3: Við leggjum á Skeiðarárjökulinn í dag og kynnumst heillandi
landslagi þessa víðáttumesta skriðjökuls landsins. Um er að ræða
ríflega 15 km göngu á tiltölulega flötum ís, þar sem einu kennileitin
eru sanddrýli og garðar. Þegar komið er aftur á fast land í Norðurdal í
Skaftafellsfjöllum, bíður tilkomumikill náttstaður milli jökuls og
snarbrattra tinda, að mati margra einn sá flottasti í heimi.
Dagur 4: Á þessum síðasta degi ferðarinnar er gengið yfir
Skaftafellsfjöllin um líparítgular Kjósareggjarnar, þar sem útsýnið
gerir öll orð máttvana. Haldið er ofan Vesturdal niður í Bæjarstaðarskóg
og þaðan yfir Morsárdal og Skaftafellsheiðina. Ferðalok í Skaftafelli
undir kvöld.