Mývatn - Askja - IMG45

IMG_0101.JPG

Hápunktar

  • Eyðimörk og eldfjöll.
Verð frá99.900 kr.

Sérstök fimm daga ferð um marga lítt þekkta staði suður af Mývatni, þar sem áhrif vatns á landmótun og gróðurfar eru einstaklega áhrifamikil.

-Fimm daga bakpokaferð
Annar hluti göngunnar Frá strönd til strandar sem hefst í Ásbyrgi og lýkur í Vík í Mýrdal

Sérstök ferð um marga lítt þekkta staði suður af Mývatni, þar sem áhrif vatns á landmótun og gróðurfar eru einstaklega áhrifamikil. Hin mikla eyðimörk norður af Vatnajökli geymir eitt sérstæðusta náttúruundur Íslands: Öskju í Dyngjufjöllum.

Dagleið: 6-8 klst.
Heildar vegalengd: 95 km
Gönguhæð: 450 - 800 m.y.s.
Mesta hækkun: 350 m

Búnaðarlisti

Innifalið : Leiðsögn, matur í fimm daga (fyrirutani morgunmat fyrsta daginn og kvöldmat síðasta daginn), tjöld, tjaldstæðisgjöld, eldunar- og mataráhöld.
Hafa í huga : Ferðin endar í Öskju við Drekagil.
Upphafsstaður : Mývatn.



Difficulty level
IMG_0101.JPG

Hápunktar

  • Eyðimörk og eldfjöll.
Verð frá99.900 kr.

Dagur 1: Við byrjum ferðina á að fara frá Reykjahlið við Mývatn og göngum að bakkanum hinumegin. Farið er um undursamlega náttúru, t.a.m. sprengigýginn Hverfjall og Dimmuborgir sem fær flesta til að hugleiða það hversvegna Peter Jackson ákvað að mynda Hringadróttins sögu (Lord of the rings) á Nýja Sjálandi en ekki hér. Kvöldið endar á að tjalda við ánna Kráka.
Vegalengd: 18-22km (11-13.5mi)    Göngu tími: 8-10 klst

Dagur2: Við fylgjum ánni og förum hægt og bítandi að komast inn á hálendið. Fjölbreytt fuglalíf er við Kraká ásamt blómlegum gróðri - sem verður að skornum skamti sem líða tekur á. Í enda dags er tjaldað í grænni laut - þeirri síðust áður en haldið er í auðnir Ódáðahrauns.
Vegalengd: 16-18km (10-11.5mi)    Göngu tími: 6-8 klst

Dagur 3: Við yfirgefum ánna og förum að þramma yfir slétturnar með fjöllin rísandi hægt og þétt við sjóndeildarhringinn. Eftir að hafa farið yfir ófáar hraunbreiður komum við að Suðurárbotnum, vatnsuppsprettu í útjaðri Ódáðahrauns. Við lenggjum leið okkar í hraunið þar sem við á endum á að finna lítinn skála þar sem við eyðum nóttinni.
Vegalengd: 16-18km (10-11.5mi)    Göngu tími: 6-8 klst

Dagur 4: Við örkum yfir svarta sanda Ódáðahrauns þar sem á móti okkur tekur Dyngjufjalladalur, sem gæti allt eins verið úr sögum Tolkiens og endum á því líkt og deginum áður að finna notalegan skála þar sem við endum daginn.
Vegalengd: 20-22km (12-13.5mi)    Göngu tími: 8-10 klst

Dagur 5: Við byrjum daginn á því að klífa Dyngjufjöll, slóða eftir slóða þangað til við komum að Öskju. Þaðan förum við að Öskjuvatni og á leiðinni sjáum við gíginn Víti og gufuspúandi hveri. Klifin er önnur hlið öskjunnar þar sem magnað útsýni yfir vatni og sjálfa öskjuna býður okkar. Mörg fegurstu fjöll landsins heiðra okkur með náveru sinni þarna, Herðubreið og Snæfell t.a.m. Eftir það er haldið niður á við þangað til tjaldsvæðið í Drekagili tekur á móti okkur.
Vegalengd: 19-20km (11.5-12.5mi)    Göngu tími: 8-10 klst

IMG_0101.JPG

Hápunktar

  • Eyðimörk og eldfjöll.
Verð frá99.900 kr.
Veldu fjölda farþega og brottfarardag hér fyrir og svo á reikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0 kr.
IMG_0101.JPG

Hápunktar

  • Eyðimörk og eldfjöll.
Price from:99.900 kr.
Brottfarardagur Laust ?

Myndasafn

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN