Alvöru bakpokaferð um upplönd Síðu og Hverfis
Alvöru bakpokaferð um eitt stórkostlegasta svæði landsins þar sem ferðalangur skynjar vel andstæður elds og ísa og hvernig þessi náttúrufyrirbæri hafa tekist á í mótun landsins frá örófi alda.Stórbrotið og síbreytilegt landslag er rammi þessarar bakpokaferðar. Drjúgur spotti er gengin á jökli til þess að krækja fyrir tvö af stærri jökulfljótum landsins. Gengið er frá Laka um Eldborgirnar, yfir Hverfisfljót og Djúpá með og á jaðri Síðujökuls, um Beinadal og Núpsárhraun, og síðan niður með Núpsárgljúfrum. Haldið áfram yfir í tröllsleg fjöll í baklandi þjóðgarðsins í Skaftafelli. Gengið er upp með Núpsárgljúfrum upp að Grænalóni, aðþrengdu jökulstífluðu vatni milli Eggja og Grænafjalls. Ein mesta íselfur landsins, Skeiðarárjökull, er þveruð á einum degi og í dagslok er gist á einhverjum stórkostlegasta tjaldstað sem fyrir finnst. Þessi ferð býður upp á ólíka þætti íslensks náttúrufars og skilur eftir upplifanir sem endast.Ein flottasta leið Íslenskra Fjallaleiðsögumanna frá upphafi. Ferð sem sameinar ólíka þætti íslenskrar náttúru og býður upp á fjölbreytt gönguland og ,agnaða upplifun.
Heildar gönguvegalengd: 125 km.Göngutími á dag: 6-9 klst. Hæð: 200-1100 m.Mesta hækkun: 450 m.
Búnaðarlisti
Innifalið : Leiðsögn, akstur frá Kirkjubæjarklaustri í Laka, tjöld, matur, eldunaráhöld og annar nauðsynlegur jöklabúnaður.Hafa í huga : Ferðin hefst á Kirkjubæjarklaustri og endar í Skaftafelli, því er nauðsynlegt að gera ráð fyrir gistingu á eða við Kirkjubæjarklaustur kvöldið fyrir ferðina.Upphafsstaður : Kirkjubæjarklaustur.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996