Laki - Núpsstaðarskógar - IMG40

IMG40-6.jpg

Hápunktar

  • Lakagígar
  • Síðujökull
Verð frá110.000 kr.

Um eldhraun og jökla öræfanna

Alvöru bakpokaferð um eitt stórkostlegasta svæði landsins þar sem ferðalangur skynjar vel andstæður elds og ísa og hvernig þessi náttúrufyrirbæri hafa tekist á í mótun landsins frá örófi alda.

Dagleiðir:  6-9 klst
Heildar gönguvegalengd: 65 km. 
Hæð: 450-650 m.
Mesta hækkun: 250 m.

Búnaðarlisti

Innifalið : Leiðsögn og fararstjórn, akstur frá Klaustri að Laka og úr Núpsstaðaskógum að Klaustri, tjöld, matur
Hafa í huga : Nauðsynlegt er að gera ráð fyrir gistingu á eða við Kirkjubæjarklaustur kvöldið fyrir ferðina.
Upphafsstaður : Bensínstöð á Kirkjubæjarklaustri.



Difficulty level
IMG40-6.jpg

Hápunktar

  • Lakagígar
  • Síðujökull
Verð frá110.000 kr.

Dagur 1: Ekið frá Kirkjubæjarklaustri að Lakagígum. Gengið á Laka og horft yfir víðáttumikil hraun og gígaraðir þessarar mögnuðu gosraðar. Eftir að hafa notið mikilfenglegs útsýnisins til hlítar er haldið austur og norður fyrir fjallið Blæng og  áfram að vatninu við Innri-eyrar þar sem tjaldað er í hraunbolla með útsýni yfir nánast allan Síðujökulinn.

Dagur 2: Í dag er glímt við vatnsföll og jökla. Undanfarin ár hefur Hverfisfljótið verið með öllu óvætt og því verið tölt upp á Síðujökulinn til þess að krækja fyrir það. En þó að Hverfisfljótið sé ekki vaðið, bíða okkar önnur vöð eftir að jökli sleppir enda kemur óhemju vatn undan sjálfum jöklinum. Eftir vatnssull í Fossahrauni er trúlega langt liðið á dag og því trúlega best að skyggnast um eftir hentugu tjaldsvæði skammt frá Djúpárkvíslunum.

Dagur 3: Í býtið er haldið upp á Síðujökul, til þess að krækja fyrir Djúpána, sem er engu síðra vatnsfall en Hverfisfljótið um þessar mundir. Hitt er þó ljóst að ganga á jökli kemur ekki í veg fyrir vatnssull eða vöðslur og yfirleitt er það eingöngu á færi kunnugra að komast klakklaust yfir vatnsföll af þessu tagi. Þegar Djúpáin er að baki er haldið niður í Beinadal sem ber nafn af örlögum kinda sem lent hafa þar í hörðum hretum og orðið úti. Nafnið kann að vera kaldranalegt en þarna leynast þægilegir grónir krikar í skjóli hrauna og seint í júlí lita eyrarósabreiður dalbotninn bleikan.

Dagur 4: Gengið suður í mót um brunahraun og jökulsorfnar hlíðar áður en haldið er ofan í tröllsleg Skessutorfugljúfrin. Þar getur að líta stórkostlegar kynjamyndir sem fá hugann til þess að reika og gott ef ekki að votti fyrir skugga af skessu hér og hvar. Í dagslok bíður enn eitt mikilfenglegt tjaldstæði göngufólks.

Dagur 5: Stórfengleg gljúfur Núpsár eru skoðuð áður en gengið er  niður fyrir Kálfsklifið í hina raunverulegu Núpsstaðarskóga. Þessi skógivaxni dalur er leynd perla, innilokaður af jökulánum Súlu og Núpsá annarsvegar, og sjálfum Lómagnúp hinsvegar. Svo sannarlega staður til þess að njóta og það er því með semingi sem við ljúkum ferðinni og höldum akandi úr skógunum að Kirkjubæjarklaustri

IMG40-6.jpg

Hápunktar

  • Lakagígar
  • Síðujökull
Verð frá110.000 kr.

Þjónustur

  • Package w/accommodation in Kirkjubæjarklaustur and Transfer - 39.000 ISK
  • Double room in a guesthouse in Reykjavík with p.u. and d.o. - 20.000 ISK
  • Single room in a guesthouse in Reykjavík with p.u. and d.o. - 28.500 ISK
  • Double room in a three-star hotel in Reykjavík with p.u. and d.o.- 29.000 ISK
  • Single room in a three-star hotel in Reykjavík with p.u. and d.o.- 46.500 ISK
Veldu fjölda farþega og brottfarardag hér fyrir og svo á reikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0 kr.
IMG40-6.jpg

Hápunktar

  • Lakagígar
  • Síðujökull
Price from:110.000 kr.
Brottfarardagur Laust ?
14.07.2012 Staðfest ferð
28.07.2012 Laust

Myndasafn

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN