Dagur 1: Ferðn hefst við Lambaskarðshóla
(Hólaskjóli). Frá Hólaskjóli er gengið um grænar heiðar sem skornar eru
af vatnsrofi og stöku opum í gossprungu Eldgjárinnar sem liggur eins og
bendill í áttina að upphafspunkti sínum: eldtöðinni Kötlu undir
Mýrdalsjökli. Tjaldað er við Svartafellstanga eða Rauðabotn sem er einn
af stærri gígum gossprungunnar. Tjald.
Dagur 2: Haldið er fram hjá Brytalækjum í áttina að
Öldufelli í jaðri Mýrdalsjökuls. Gengið inn að lindum sem spretta upp í
jaðri Öldufellsins og heim að Öldufellsjökli og síðan áfram á sléttum
jöklinum yfir að útfalli Jökulkvíslar, vatnsmikillar jökulár sem rennur í
Hólmsá. Tjaldað við Jökulgil og farið í fossakönnunarferð í giljunum
hjá Austastahrygg. Tjald.
Dagur 3: Dagurinn hefst á því að vaða kvíslina sem
kemur úr Vondugiljum en síðan liggur leiðin yfir sporð Sandfellsjökuls.
Þegar komið er niður af jöklinum er vaðið yfir tvær jökulkvíslar og
gengið upp á sléttuna ofan Sandfells. Máttur jökulsins verður mönnum
augljós þegar haldið er áfram með brún Mýrdalsjökuls. Berlega sérst hve
mikið jökullinn hefur hopað á síðustu árum. Eftir standa jökulgarðar,
stórgrýti og aðrar jökulmenjar. Í lok dags er áð við jaðar
Höfðabrekkujökulsins. Tjald.
Dagur 4: Fyrri hluti dagsins fer í göngu yfir
Höfðabrekkujökul. Jökullinn er að mestu leyti sléttur en þó þarf að
krækja fyrir nokkur sprungusvæði. Upp úr vestanverðum jöklinum stendur
jökulskerið Huldufjöll, meðfram því eru tignarlegir brattir og úfnir
skriðjöklar. Landtakan af jöklinum er nokkuð á fótinn og skilar okkur
upp á stórbrotinn útsýnistað ofarlega á Höfðabrekkuafrétt. Farið er
niður með Þakgili sem í raun bæri gljúfur nafn með rentu, svo stórbrotið
sem það er. Um leið og færi gefst er gengið niður í gilið og tjaldað
þar. Tjald.
Dagur 5: Lokadag ferðarinnar er haldið yfir
Höfðabrekkuheiði, vaðið yfir Heiðargils- og Sandá við ármótin og farið
upp á Arnarstaksheiði þaðan sem gott útsýni er yfir Heiðarvatn. Þegar
komið er fram á fjallgarðinn blasa við kunnugleg kennileiti;
Reynisdrangar, Vík og Reynisfjall. Komið er niður á tjaldstæðið þar sem
ferðinni lýkur.