Dagur 1: Lagt af stað seinnipartinn. Gengið inn í
svarta sandbreiðuna norðan Öskju. Áfangastaður þessa fyrsta dags
er gróðurvinin við Svartá, sem kemur á óvart mitt inni í sandöldunum.
Tjald.
Dagur 2: Eftir að fyllt hefur verið á
vatnsflöskurnar er lagt af stað yfir sandinn, nú með Dyngjujökul á
vinstri hönd og Öskju á þá hægri. Hér minnir útsýnið um margt á Mordor
Tolkíens. Eftir dagleið um þessa sandauð í víðáttunni norðan Vatnajökuls
er komið að hæð þar sem jökulá rennur hjá. Hér er tjaldað við eina
vatnið sem býðst um óraveg. Tjald.
Dagur 3: Nú gerist landið ósléttara og meira á
fótinn. Gengið er þvert yfir litla hraunbreiðu og upp á Urðarhálsinn,
ævafront eldfjall sem enn í dag geymir einn af dýpstu gígum Íslands.
Ekki langt frá Vatnajökli komum við svo að neyðarskýlinu við Kistufell
þar sem gist er um nóttina. Tjald.
Dagur 4: Eins og dagana á undan liggur leiðin um
auðnir og víðáttu. Ekki stingandi strá að sjá í svörtum sandinum. Vaða
þarf einstöku jökulá og gamalli gígaröð fylgt í Gæsavötn. Hér er gist í
skála og hægt að drekka í sig litadýrð gróðurs og angan eftir langan dag
í svörtum sandi. Skáli
Dagur 5: Stuttu eftir að lagt er upp frá Gæsavötnum
er komið að mikilli jökulá. Það fer eftir aðstæðum hvort áin er vaðin
eða gengið að upptökum hennar og farið yfir jökul. Stefnan er tekin
á Vonarskarð þar sem tjöldum er slegið upp að kveldi dags. Tjald.
Dagur 6: Farið er um bratt fjallaskarð yfir í
Snapadal, þar sem finna má heitar laugar. Hér gefur að líta magnaðan
litasymfon marglitra líparítfjallanna sannkallað augnayndi eftir
einsleitni grárra basaltfjallanna. Áfram haldið um fjallaskörð og hryggi
niður í Jökuldal og við enda hans komið að tjaldstæðinu og skálanum í
Nýjadal.