Útbúnaðarlisti fyrir Trússferð
Ferðafatnaður (til að klæðast á göngu)
" Nærskyrta úr ullar eða flís efni (t.d. Stillongs)
" Þunn peysa eða skyrta úr ull eða flís.
" Lopapeysa eða þykk flíspeysa.
" Ullarsokkar.
" Buxur þurfa að vera sterkar og úr efni sem þornar fljótt. Ýmislegt kemur til greina, t.d. hnébuxur úr teygjanlegu efni, flísbuxur, buxur úr ullarefni eða pólyester.
Í dagpokann:
Ullarnærskyrta
Síðar nærbuxur
1-2 pör af ullarsokkum(ullarsokkar með frotté fara t.d. vel með fætur). Forðast ber að klæðast sportsokkum úr bómull fyrir innan ullarsokkana.
Góðir íslenskir ullarvettlingar, eitt eða tvö pör eru nauðsynlegir og utanyfirvettlingar úr vatnsheldu efni eru ekki til skaða.
Ullarhúfa eða lambhúshetta og e.t.v. ennisband.
Gamlir strigaskór eða sandalar til að vaða ár.
Sólgleraugu og sólvarnarkrem
Myndavél
Vasahnífur
0,7 - 1,0 lítra plastflaska undir vatn
Annað:
Jakki eða anorak úr vatnsheldu efni og með góðri hettu , annað hvort Goretex eða sambærilegt, eða gúmmígalli (t.d. fást þeir mjög léttir hjá 66°N).
Utanyfirbuxur úr sama efni. Ath: ef axlabönd fylgja ekki með buxunum er oftast mjög gott að bæta þeim við sjálfur.
Gönguskór, mjúksóla úr leðri eða rúskinni og næloni. Hægt er að fá leðurskóna með eða án Goretex (í sumum tilfellum Sympatex) og í öllu falli er hægt að vatnsverja þá töluvert með leðurfeiti. Ef um er að ræða skó úr rúskinni og næloni þá er betra að þeir séu með Goretex eða sambærilegu en þó ekki nauðsynlegt. Það sem er mikilvægast er að skórnir passi vel og séu þægilegir.
Legghlífar
Gamlir strigaskór eða sandalar til að vaða ár.
Göngustafir (ef vill)
Annar búnaður, sem fluttur er með bíl:
Bakpoki, stórsekkur eða vatnsheldur sjópoki. Til eru margar góðar gerðir af bakpokum, flestir grindarlausir. Tveggja hólfa pokar eru þægilegir en ekki eins vatnsheldir og þeir sem eru með einu meginhólfi. Í flutningnum er alltaf viss hætta á bleytu eða ryki, gott er að pokinn þoli hvort tveggja.
Svefnpoki með dún eða fíberfyllingu. Nauðsynlegt er að pokinn sé léttur og hlýr og því mælum við helst með gæsadún eða Quallofil svefnpokum. Hafa ber í huga að tölur um kuldaþol svefnpoka eru oftast ýktar og því nauðsynlegt að pokinn sé gefinn upp fyrir a.m.k. -8°C.
Einangrunardýna úr frauði eða sjálfuppblásin (ekki svampdýna eða vindsæng).
Aukafatnaður:
Aukapeysa þunn
Aukapeysa þykk
3-4 pör af ullarsokkum
Og að lokum ýmislegt smálegt sem gott er að hafa með:
Tannbursti / tannkrem
Salernispappír
Handklæði
Höfuð- eða vasaljós
Vatnsheld bókmennt
NB. fyrir Grænlandsferð: Á Grænlandi er mývargur til nokkurra óþæginda, flugnanet fyrir andlit getur komið sér vel, viðkvæmt fólk ætti að verða sér úti um áburð til varnar og meðferðar á biti. Tjöldin eru með innbyggðum flugnanetum.