Útbúnaðarlisti fyrir Lónsöræfin

Ferðafatnaður (til að klæðast í upphafi göngu):
Nærskyrta úr ullar eða flís efni (t.d. Stillongs).
Þunn peysa eða skyrta úr ull eða flís.
Lopapeysa eða þykk flíspeysa.
Ullarsokkar.
Buxur þurfa að vera sterkar og úr efni sem þornar fljótt. Ýmislegt kemur til greina, t.d. hnébuxur úr teygjanlegu efni, flísbuxur, buxur úr ullarefni eða pólyester.

Í bakpokann:
ullarnærskyrta
síðar nærbuxur
aukapeysa
3 pör af ullarsokkum(ullarsokkar með frotté fara t.d. vel með fætur). Forðast ber að klæðast sportsokkum úr bómull fyrir innan ullarsokkana.
góðir íslenskir ullarvettlingar, eitt eða tvö pör eru nauðsynlegir og utanyfirvettlingar úr vatnsheldu efni eru ekki til skaða.
ullarhúfa eða lambhúshetta og e.t.v. ennisband.
Jakki eða anorak úr vatnsheldu efni og með góðri hettu , annað hvort Goretex eða sambærilegt, eða gúmmígalli (t.d. fást þeir mjög léttir hjá 66°N).
Utanyfirbuxur úr sama efni. Ath: ef axlabönd fylgja ekki með buxunum er oftast mjög gott að bæta þeim við sjálfur.
Gönguskór, mjúksóla úr leðri eða rúskinni og næloni. Hægt er að fá leðurskóna með eða án Goretex (í sumum tilfellum Sympatex) og í öllu falli er hægt að vatnsverja þá töluvert með leðurfeiti. Ef um er að ræða skó úr rúskinni og næloni þá er betra að þeir séu með Goretex eða sambærilegu en þó ekki nauðsynlegt. Það sem er mikilvægast er að skórnir passi vel og séu þægilegir.
Legghlífar

Annar búnaður:
Bakpoki. Til eru margar góðar gerðir af bakpokum, flestir grindarlausir. Gott er að miða við 50 til 60 lítra poka fyrir kvenmann og 60 til 70 lítra fyrir karlmann.
Gamlir strigaskór eða sandalar til að vaða ár.
Göngustafir (ef vill)

Fjallaeldhúsið
Allir skálarnir eru vel búnir að eldunar og mataráhöldum og því eingöngu nauðsynlegt að huga að mat fyrir þessa ferð.
Matur: 4 morgun og kvöldverðir og 5 hádegisverðir
Við mælum með múslí í morgunverð, flatkökum með áleggi, harðfiski og kexi sem uppistöðu í dagsnestinu, og til kvöldverðar eru ýmsar gerðir af pasta eða þurrmatur hentugust. Gleynið ekki kaffinu eða kakóduftinu!

Og að lokum ýmislegt smálegt sem gott er að hafa með:
Tannbursti
Dálítið tannkrem (má setja í filmuhylki)
2-4 metrar salernispappír
Mjög lítið handklæði
Sólgleraugu og sólvarnarkrem
E.t.v. myndavél og filmur
Vasahnífur
Höfuð- eða vasaljós (óþarfi í júní-júlí)
U.þ.b. 0,5 lítra plastflaska undir vatn
Lítil, létt og vatnsheld bókmennt.

Ath.
Svefnpokar og dýnur eru í skálum á þessari leið og því er óþarfi að burðast með slíkan búnað en gott að hafa með sér lakapoka

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN