Smelltu þér á Hvannadalshnúk í vor
Hvannadalshnúkur er orðinn árviss áfangastaður fjölmargra Íslendinga. Ganga á Hvannadalshnúk á vorinn þegar hvít snjóþekja nýliðins vetrar liggur enn yfir veður er jafnan skaplegt er upplifun sem seint mun líða úr minni. Ekki aðeins vegna þess að fjallgangan í sjálfu sér er stórbrotin heldur einnig vegna þess að Öræfajökull er einstakt eldfjall með mikla sögu.
Ganga á Hvannadalshnúk krefst þjálfunar en ætti ekki að vera ofraun neinum sem hreyfir sig reglulega.
Þeir sem hafa þegar gengið á Hvannadalshnjúk eða vilja skoða annað í svipuðum flokki ættu að líta á Hrútsfjallstinda, Sveinstind í Öræfajökli, Þverártindsegg, Miðfellstind eða Öskjuhring Öræfajökuls í dagsferðum.
Hvannadalshnúkur - IMG25
Gönguferð á hæsta tind landsins er fremur auðveld tæknilega en tekur drjúgt af úthaldinu. Ferð á Hnúkinn er ógleymanleg upplifun og allmargir fara ár hvert.
Hvannadalshnjúkur - Virkisjökulsleið - IMG254
Virkisjökulsleið á Hvannadalshnjúk er að flestra mati fallegasta gönguleiðin á hæsta tind landsins. Leiðin liggur á milli hrikalegs Hvannadalshryggsins og jökulbrattans.
Tilboð: Hvannadalshnjúkur með gistingu - IMG25G
Í samstarfi við Hótel Skaftafell bjóða Íslenskir fjallaleiðsögumenn upp á sérstakt verð á vinsælustu fjallgöngu okkar. Hvannadalshnjúk ur með gistingu og kvöldverði.
Á skíðum upp á Hnúk og niður Svínafellsjökul - IMG253
Flottasta fjallaskíðaleið landsins. Nærri 2.000 metra lækkun í fullkomnum fjallasal.

English
Íslenska
















