Einkaleiðsögn 

Langar þig að uppgötva nýjar hliðar á landinu? Kynnast ókunnum kimum sem hafa lengi heillað? Þá gæti verið tilvalið að nýta sér einkaleiðsögn með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Á okkar snærum starfa margreyndir, hæfileikamenn í klifur-, göngu- og skíðaleiðsögn sem leiða þig og þína um um fjöll og firnindi, nær sem fjær.Einkaleiðsögn má laga að þörfum og getu hvers einstaklings eða hóps, allt frá byrjend

um til þaulreyndra fjallamanna. Boðið er upp á ísklifur, klettaklifur, og skíðaferðir með leiðsögumanni, en einkaleiðsögn getur einnig hentað stærri eða minni hópum sem vilja fara í sérsniðnar gönguferðir.  Þannig fæst aukinn sveigjanleiki í ferðatilhögun um leið og þú nýtur þess öryggis og þekkingar sem fæst með því að ferðast með atvinnuleiðsögumanni.
 
Dæmi um ferðir þar sem einkaleiðsögn getur verið góður kostur:
            •    Bakpoka- og trússferðir fyrir minni og stærri hópa um allt land - þú velur leiðina!
            •    Klifur á Hraundranga í Öxnadal.
            •    Fjallaskíðaferð á Hvannadalshnúk.
            •    Gönguskíðaferð yfir Sprengisand eða Vatnajökul.
            •    ... eða hvað annað sem þér dettur í hug.
Leitið nánari upplýsinga hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum.

 Hægt er að skoða myndir af vettvangi hér og kannski kvikna einhverjar hugmyndir í framhaldinu!