Ferðir Íslenskra fjallaleiðsögumanna  

Boðið er upp á fjölbreyttar ferðir af öllum erfiðleikastigum. Oft eru ferðirnar um afskekt og torfær svæði en stundum leitum við skemmra eftir athyglisverðum möguleikum. Ferðirnar eru allt frá því að vera dagsferðir sem standa í nokkrar klukkustundir, til mánaða langra leiðangra. Við höfum að leiðarljósi að ganga um með virðingu fyrir náttúru og menningu þeirra svæða sem farið er um og beitum í því skyni hugmyndum um sjálfbæra ferðamennsku. Allar eiga ferðirnar það sameiginlegt að vera stýrt af atvinnumönnum þar sem öryggi, fagmennska og góð þjónusta við viðskiptavininn er í fyrirrúmi.