AUÐVELD
ERFIÐ
Heils dags ævintýri á einum flottasta skriðjökli Vatnajökuls í Þjóðgarðinum Skaftafelli
Verð frá:
16.300
kr.
Brottfararstaður: Skáli Íslenskra Fjallaleiðsögumanna í þjóðgarðinum í Skaftafelli.
Brottfarir: Daglega klukkan 9:00
Lágmarks aldur: 16 ára
Lengd: 6 ½ klst. á ís, heild 7 klst.
Við útvegum: Leiðsögn, allur jökla og öryggisbúnað
Þú kemur með: Hlý föt, regnfatnaður, gönguskór, mat og orku stykki
Ganga á ísbreiðum SvínafellsjökulsGanga með erfileikastig miðlungs/krefjandi í magnþrungnu umhverfi Svínafellsjökuls umkringt nokkrum af fallegustu fjallstindum landsins. Klifrað er upp skriðjökulinn upp að djúpum jökuldal milli Hvannadalsnúks og Hrútfjalls þar sem farið er yfir síbreytilegt umhverfi jökulsins. Töfrandi heimur íssins - stórir drangar, ís skúlptúrar, djúpar sprungur, íshryggir í allskonar skringilegum formum og aðrar ís myndanir bíða þess að fá þig í heimsókn. Þrautþjálfaður og reynslumikill leiðsögumaður gengur svo úr skugga um að allir njóti fyllsta öryggis í þessum töfraheim jökulsins. Brottfarir: Daglega klukkan 9:00
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996