AUÐVELD
ERFIÐ
Frábær dagsferð sem sameinar tvo síbreytilega heima, jarðhitasvæðið hjá Hengli og jöklagöngu á Sólheimajökli
Verð frá:
25.900
kr.
Brottfararstaður: Farþegar eru sóttir á hótel eða gistiheimili í Reykjavík kl: 8:30
Lágmarks aldur: 10 ára
Lengd: 11-12 klst í heildina, 4-5 klst ganga
Við útvegum: Leiðsögn, ísaxir, mannbrodda og öryggisbúnað
Þú kemur með: Hlý föt, regnfatnað, gönguskó og nesti. Regnföt er hægt að fá lánað, sé beðið um það sérstaklega
Auðveld - hófleg ganga á hverasvæði og ganga á jökli.Þessi ferð býður upp á margt af því besta sem náttúra Íslands hefur upp á að bjóða. Ferðin hefst á auðveldri göngu um jarðhitasvæðið á Hengilssvæðinu og niður í Reykjadal þar sem við skoðum hveri og böðum okkur í heitum læk. Við höldum því næst áfram í austurátt, fáum okkur hádegisverð í Hveragerði og ökum að Sólheimajökli í Mýrdalsjökli. Á leiðinni að Sólheimajökli gefast góð tækifæri til þess að sjá eldgosið í Eyjafjallajökli í fullum gangi og afleiðingar öskufallsins í sveitinni sunnan gossins. Á Sólheimajökli leiðsegjum við þér um undraheim blás íss, sterk skil ösku og íss og skoðum sprungur og svelgi í jöklinum. Á bakaleiðinni sjáum við Skógafoss og skoðum Seljalandsfoss.
Auðveld - hófleg ganga á hverasvæði og ganga á jökli.
Þessi ferð býður upp á margt af því besta sem náttúra Íslands hefur upp á að bjóða. Ferðin hefst á auðveldri göngu um jarðhitasvæðið á Hengilssvæðinu og niður í Reykjadal þar sem við skoðum hveri og böðum okkur í heitum læk. Við höldum því næst áfram í austurátt, fáum okkur hádegisverð í Hveragerði og ökum að Sólheimajökli í Mýrdalsjökli. Á leiðinni að Sólheimajökli gefast góð tækifæri til þess að sjá eldgosið í Eyjafjallajökli í fullum gangi og afleiðingar öskufallsins í sveitinni sunnan gossins. Á Sólheimajökli leiðsegjum við þér um undraheim blás íss, sterk skil ösku og íss og skoðum sprungur og svelgi í jöklinum. Á bakaleiðinni sjáum við Skógafoss og skoðum Seljalandsfoss.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996