AUÐVELD
ERFIÐ
Fallegasta gönguleiðin á hvannadalshnjúk að mati flestra!
Verð frá:
25.900
kr.
Brottfararstaður: Bækistöð Íslenskra fjallaleiðsögumanna við þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins í Skaftafelli. Fundur er með leiðsögumanni í Skaftafelli kvöldið fyrir ferðina. Símanúmerið hjá leiðsögumönnum er 8942959
Lágmarks aldur: 16
Lengd: 10 - 15 tímar
Við útvegum: Allan nauðsynlegan jökla og öryggisbúnað ásamt leiðsögn
Virkisjökulsleið á Hvannadalshnjúk er að flestra mati fallegasta gönguleiðin á hæsta tind landsins. Leiðin liggur á milli hrikalegs Hvannadalshryggsins og jökulbrattans.Hvannadalshnjúkur er hæsti tindur landsins 2111 metrar og upp á hann liggja nokkrar mismunandi gönguleiðir.Virkisjökulsleið var lengi vel aðal gönguleið Fjallaleiðsögumanna á Hvannadalshnúk en vegna síminnkandi snjóalaga varð sú leiðin torfærari og því hefur Sandfellsleiðin oftast verið farin undanfarin 5 ár. Virkisjökulsleiðin er um margt ólík Sandfellsleiðinni í hrikalegum krika milli jökuls og Hvannadalshryggsins, um brattann jökulinn, undir Dyrhamar og upp á Hvannadalshnjúk. Klárlega leið sem er verðugt verkefni fyrir áhugasamt fjallafólk. Þetta er krefjandi ganga enda hækkunin meiri en 2000 m og dagleiðin ríflega 20 km. Gera verður ráð fyrir 10 - 15 stundum í gönguna.Gönguferð á hæsta tind landsins er fremur auðveld tæknilega en tekur drjúgt af úthaldinu. Ferð á Hvannadalshnjúk er ógleymanleg upplifun og allmargir fara ár hvert. Alla jafna er farin Sandfellsleið sem er tiltölulega auðveld gönguleið og fær mestan hluta árs. Virkisjökulsleið er tiltölulega auðfær snemma vors, svo fremi að snjóalög séu sæmileg.Dagsetning brottför fyrir 2012 verður auglýst síðarHafa í huga : Lágmarksfjöldi er 2Hvannadalshnjúkur eftir VirkisjökulsleiðGangan á Hvannadalshnjúk hefst skammt frá Virkisjökli klukkan 05.00 og áður en langt um líður þarf að spenna brodda undir skó til þess að komast á öruggan hátt yfir jökulsporðinn. Leiðin liggur svo upp Bröttufönn og áfram austanundir Hvannadalshryggnum og Dyrhamri upp á hátindinn. Aðstæður og veður ráða miklu um hversu lengi við stöldrum við á toppnum en við bestu aðstæður er vandfundinn betri staður til að vera á. Við höldum yfir öskjuna og áfram niður Sandfellsleið og endum á sama stað undir kvöld.Að sjálfsögðu er hugað að næringu og vökvun á leiðinni og áð til þess að sinna slíku. Eftir að komið er í línu er að jafnaði stoppað á klukkustundar fresti og að sjálfsögðu verður tekin ærleg matarpása.Nauðsynlegt er að stoppa í bækistöð Fjallaleiðsögumanna í Skaftafelli kvöldið fyrir gönguna og fá afhentan nauðsynlegan jöklabúnað og fara yfir ferðatilhögun með leiðsögumanni/konu. Svo að allir fái nægan svefn er gott að miða við það að vera komin austur í Skaftafell ekki seinna en 20.00 – 21.00 kvöldið fyrir gönguna. Ekki má horfa framhjá mikilvægi góðrar næturhvíldar fyrir göngu sem þessa.
Virkisjökulsleið á Hvannadalshnjúk er að flestra mati fallegasta gönguleiðin á hæsta tind landsins. Leiðin liggur á milli hrikalegs Hvannadalshryggsins og jökulbrattans.
Hvannadalshnjúkur er hæsti tindur landsins 2111 metrar og upp á hann liggja nokkrar mismunandi gönguleiðir.
Virkisjökulsleið var lengi vel aðal gönguleið Fjallaleiðsögumanna á Hvannadalshnúk en vegna síminnkandi snjóalaga varð sú leiðin torfærari og því hefur Sandfellsleiðin oftast verið farin undanfarin 5 ár. Virkisjökulsleiðin er um margt ólík Sandfellsleiðinni í hrikalegum krika milli jökuls og Hvannadalshryggsins, um brattann jökulinn, undir Dyrhamar og upp á Hvannadalshnjúk. Klárlega leið sem er verðugt verkefni fyrir áhugasamt fjallafólk. Þetta er krefjandi ganga enda hækkunin meiri en 2000 m og dagleiðin ríflega 20 km. Gera verður ráð fyrir 10 - 15 stundum í gönguna.
Gönguferð á hæsta tind landsins er fremur auðveld tæknilega en tekur drjúgt af úthaldinu. Ferð á Hvannadalshnjúk er ógleymanleg upplifun og allmargir fara ár hvert. Alla jafna er farin Sandfellsleið sem er tiltölulega auðveld gönguleið og fær mestan hluta árs. Virkisjökulsleið er tiltölulega auðfær snemma vors, svo fremi að snjóalög séu sæmileg.
Dagsetning brottför fyrir 2012 verður auglýst síðar
Hafa í huga : Lágmarksfjöldi er 2
Gangan á Hvannadalshnjúk hefst skammt frá Virkisjökli klukkan 05.00 og áður en langt um líður þarf að spenna brodda undir skó til þess að komast á öruggan hátt yfir jökulsporðinn. Leiðin liggur svo upp Bröttufönn og áfram austanundir Hvannadalshryggnum og Dyrhamri upp á hátindinn. Aðstæður og veður ráða miklu um hversu lengi við stöldrum við á toppnum en við bestu aðstæður er vandfundinn betri staður til að vera á. Við höldum yfir öskjuna og áfram niður Sandfellsleið og endum á sama stað undir kvöld.
Að sjálfsögðu er hugað að næringu og vökvun á leiðinni og áð til þess að sinna slíku. Eftir að komið er í línu er að jafnaði stoppað á klukkustundar fresti og að sjálfsögðu verður tekin ærleg matarpása.
Nauðsynlegt er að stoppa í bækistöð Fjallaleiðsögumanna í Skaftafelli kvöldið fyrir gönguna og fá afhentan nauðsynlegan jöklabúnað og fara yfir ferðatilhögun með leiðsögumanni/konu. Svo að allir fái nægan svefn er gott að miða við það að vera komin austur í Skaftafell ekki seinna en 20.00 – 21.00 kvöldið fyrir gönguna. Ekki má horfa framhjá mikilvægi góðrar næturhvíldar fyrir göngu sem þessa.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996