Flottasta
fjallaskíðaleið landsins. Nærri 2.000 metra lækkun í fullkomnum
fjallasal.
Ekki þarf að
fjölyrða um Hvannadalshnúk, hæsta tind landsins en ganga á hann er
fyllilega hæðar sinnar virði í gulli. Hitt er svo annað mál að ekki er
amalegra að ferðast á skíðum um undirhlíðar hans og skriðjökla. Ein
flottasta fjallaskíðaleið þessa lands er án efa niður mikilfenglegan
Svínafellsjökulinn. Vorið 2010 bjóða Fjallaleiðsögumenn upp á eina
brottför í þessa krefjandi en mögnuðu skíðaferð. Farið verður upp
Sandfellsleiðina á Hnúkinn áður en skíðaferðin niður hefst, sem án efa
felur í sér einhverjar flottustu salíbunur þessa lands.Langur og
krefjandi dagur!
Dagsetningar 2012:
12. maí 2012
26. maí 2012
Hafa í huga : Aðeins
4 á hvern leiðsögumann, lágmarksfjöldi 2