Hvannadalshnúkur - á fjallaskíðum, Sandfellsleið - IMG255

AUÐVELD

ERFIÐ

Fjallaskíðaferða í heimsklassa - bættu spennandi leið í reynslubankann!

Verð frá:

26.900

kr.

Brottfararstaður: Bílastæði við Sandfell

Brottfarir: 28. apríl og 5. maí

Lágmarks aldur: 16 ára

Við útvegum: Allan nauðsynlegan jöklabúnað

Þú kemur með: Skíðabúnað

Fjallaskíði hafa verið að ryðja sér til rúms sem spennandi kostur í fjallamennsku Íslendinga. Til að koma til móts við þá fjölmörgu sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessari spennandi íþrótt bjóða Fjallaleiðsögumenn nú upp á léttari útgáfu af skíðaferð á Hvannadalshnúk. Hér er farin hin vinsæla Sandfellsleið. Gera má ráð fyrir að hægt sé að skíða úr amk 700m hæð og mögulega er hægt að elta skafla enn neðar.

Skíðað er upp í loka brekkuna að Hnúknum en síðustu 200 hæðarmetrana er gegnið á tveimur jafnfljótum með skíðin á bakinu. Á niðurleiðinni bjóðast svo skemmtilegar brekkur sem byrja í um 1800m hæð sem ættu að vera á færi flestra skíðamanna.

Frábær ferð fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á fjallaskíðum og vilja spennandi dag til að bæta við reynslubankann í öruggri skíðun.

Brottför:
28.apríl 2012
5.maí 2012

Hafa í huga : 6 manns á hvern leiðsögumann, lágmarksfjöldi 3

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN