Hvannadalshnjúkur er hæsti tindur landsins og vinsæl áskorun fyrir þá sem eru komnir af stað í gönguferðum og fjallgöngum. Af þessum ástæðum hefur ferð okkar á Hvanndalshnjúk verið vinsælasta ferð Íslenskra Fjallaleiðsögumanna hjá Íslendingum frá því að fyrirtækið byrjaði að leiðsegja á Hnjúkinn 1994.
Hvannadalshnjúkur býður upp á einstakt útsýni í allar áttir. Sjá má yfir endalausar fannbreiður Vatnajökuls, svarta strandlengju Skeiðarársands, hrikalega Hrútsfjallstinda og bratta skriðjökla Öræfajökuls. Þetta samspil stórbrotinnar náttúru og gefandi útivistar dregur Íslendinga sem og erlenda ferðamenn að Hvannadalshnjúki, hátindi Öræfajökuls, ár hvert.
Ganga á Hvannadalshnjúk reynir á úthald og viljastyrk gesta okkar, en í fylgd reyndra jöklaleiðsögumanna er ekki þörf á neinni sérhæfðri kunnáttu. Í ferðum okkar á Hvannadalshnjúk miðum við við hámark 8 gesti á hvern jöklaleiðsögumann við bestu aðstæður. Þegar líða tekur á sumarið og sprungur opnast meira lækkum við hlutfallið eftir aðstæðum.
Fyrir frekari upplýsingar og bókanir hafið samband við dagsferðadeild Íslenskra Fjallaleiðsögumanna, s. 587 9999 eða tölvupóstur: info@mountainguides.is
Göngur á Hvannadalshnjúk byrja á undirbúningi. Kvöldið fyrir
gönguna hittir leiðsögumaðurinn alla sína göngumenn og fer yfir daginn
með þeim. Á þessum fundi er farið yfir búnað þátttakenda, jöklabúnaður
(belti, broddar og exi) afhentur, spurningum svarað og brottför tímasett
nákvæmlega. Oftast leggjum við af stað á milli 4 og 6 á morgnanna,
eftir veðurspá hverju sinni.
Uppgangan hefst við eyðibýlið Sandfell, um 7 kílómetrum austan við
Freysnes. Óhætt er að leggja af stað með lítið vatn um morguninn því að
fyrsta stopp er tekið við lítinn læk í 400 metra hæð þar sem hægt er að
fylla á allar flöskur og brúsa.
Nokkur stutt stopp eru tekin á leiðinni upp Sandfellið og yfir
Sandfellsheiðina. Við jökulröndina í um 1.100 metra hæð er hópurinn
settur í línu og lagt á jökulinn. Frá 1.100 metrum upp í 1.800 metra er
að mestu samfelld snjóbrekka með fögru útsýni yfir sandana fyrir sunnan
Öræfajökul. Í 1.800 metra hæð komum við upp að brún Öræfajökuls
öskjunnar og Hvannadalshnjúkur birtist okkur í allri sinni dýrð.
Gangan yfir öskjuna er flöt og gefur góð tækifæri til þess að virða
fyrir sér umhverfi sitt, Sveinstindar öðrum megin, hrikalegar
jökulsprungur Fjalljökulsins á aðra hönd og Hvannadalshnjúkur og
Dyrhamar gnæfa yfir öskjuna framundan.
Undir hlíðum Hvannadalshnjúks er oftast tekin góð nestispása um leið
og við setjum á okkur mannbrodda og virðum fyrir okkur uppgönguleiðina.
Sjálfur Hvannadalshnúkur er lítill hluti af heildargöngunni og flestir
gleyma alveg að mæðast þegar þeir horfa í kring um sig. Í góðu veðri
ofan af Hvannadalshnúki, hæsta tindi landsins, sést vítt og breitt um
Ísland. Fannbreiður Vatnajökuls teygja sig nærri svo langt sem augað
eygir og svartur Skeiðarársandur nær lengra en nokkurn hefði grunað.
Niðurleiðin er eftir sömu leið til baka og gengur vanalega nokkuð
hraðar fyrir sig en uppgangan. Þegar komið er til byggða er mikilvægt að
teygja strax vel á öllum vöðvum og borða og drekka vel um kvöldið til
þess að jafna sig strax eftir gönguna. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn mæla
ekki með því að keyra til Reykjavíkur eftir göngu á Hvannadalshnjúk,
fyrr en eftir góða hvíld.
Munið að fara yfir búnaðarlista fyrir Hvannadalshnjúk tímanlega fyrir
brottför.
Hér fyrir neðan er myndskeið með Jón Gauta, einum af okkar reyndustu leiðsögumönnum, að fara yfir hvernig á að klæða sig og útbúa fyrir göngu á Hvannadalshnjúk