Þverártindsegg - IMG29

AUÐVELD

ERFIÐ

Einstök fjallganga í óviðjafnanlegri náttúrufegurð

Verð frá:

26.900

kr.

Brottfararstaður: Hali í Suðursveit

Lágmarks aldur: 16 ára

Lengd: 10 - 15 klst

Við útvegum: allan nauðsynlegan tæknilegan búnað

Brattar hlíðar og háar eggjar

Þverártindsegg er einn þessara afskekktu fjallatoppa sem virðast of langt í burtu til þess að leggja þá undir fót. Eggin er liðlega 4 km langur hryggur sem blasir við austan Breiðamerkurjökuls, hreykir sér þar hátt yfir Veðurárdalsfjöll. Tindurinn sjálfur rís beint upp af botni Kálfafellsdals, brattur og fagur. Lagt er upp frá bænum Hala í Suðursveit og ekið inn Kálfafellsdalinn áður en ganga á sjálft fjallið hefst, upp bratta hjalla og skriður upp á jökulinn sem leiðir okkur upp á hátindinn. Óhætt er að segja að ganga þessi er einstök enda má segja að heimsókn í fjallakima þennan komist næst því að vera í Alpalandslagi á Fróni. Útsýni af hátindinum er við bestu skilyrði óviðjafnanlegt og fullkomnlega erfiðisins virði. Heildargöngutími er 10 – 15 klst og gönguhækkun 1400m.

Hafa í huga : 6 manns á hvern leiðsögumann, lágmarksfjöldi 3

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN