Birnudalstindur - IMG28

AUÐVELD

ERFIÐ

Glæsilegur tindur sunnan Vatnajökuls með ómótstæðilegu útsýni

Verð frá:

23.900

kr.

Lágmarks aldur: 16 ára

Lengd: 10 – 14 klst

Við útvegum: Allan nauðsynlegan tæknilegan búnað

Birnudalstindur er einn af þessum glæsilegu tindum sem finna má sunnan Vatnajökuls þar sem hann rís í 1326 m hæð rétt sunnan við jökuljaðarinn austan Kálfafellsdals. Lagt er af stað frá kirkjustaðnum Kálfafellsstað og gengið norður með tindum þeim sem krýna fjallseggjarnar eins og leið liggur ofan við sjálfan Birnudalinn að austan og Kaldárgilið að vestan. Leiðin niður liggur svo niður Birnudalinn og út Staðardalinn að Kálfafellsstað. Útsýni við bestu aðstæður er mikilfenglegt með svipmikil fjöllin vestan Kálfafellsdals í forgrunni og Öræfajökul handan þeirra. Af sjálfum Birnudalstindi má sjá allt norður til Kverkfjalla á góðum degi.


Myndir: Meðfylgjandi myndir tók Leifur Hákonarson í ferð með Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum árið 2007


Heildar gönguvegalengd: rúmir 20 km
Heildarhækkun: ~1700 m

Hafa í huga : 8 manns á hvern leiðsögumann, lágmarksfjöldi 3

Gott að vita: hægt er að gista í svefnpokaplássi á Hrollaugsstöðum, ferðaþjónustubýli sem er á Kálfafellsstaðartorfunni

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN