Fjallagengið - Verð

12 mán: 24.900 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Fjallagengið!
6 mán: 13.900 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Fjallagengið!

Verðið er tvískipt og byggir á árgjaldi og sérgjaldi fyrir hverja laugardagsfjallgöngu.

Árgjald: 24.900 kr. - Veitir aðgang að öllum miðvikudagsþrekæfingum og kvöldgöngum Fjallagengisins. Ársgjaldið lækkar um 1/12 um hver mánaðrmót á starfsári Fjallagengisins (1. október til 30. september).

 

Laugardagsfjallgöngur

Greitt er séstaklega fyrir hverja laugardagsfjallgöngu og er verðið mismunandi eftir lengd og erfiðleika ferðarinnar. Alls eru fjallgöngurnar 11 á starfsárinu og skiptast þær í eftirfarandi verðflokka:

8 fjöll => 5.200 kr./fjall  (flokkur 1)
2 fjöll => 9.500 kr./fjall  (flokkur 2)
1 fjall á 16.500 kr.          (flokkur 3)

Þegar þátttakandi skráir sig í laugardagsfjallgönguna borgar hann fyrir ferðina í leiðinni.

Athugið að sérhæfður útbúnaður svo sem broddar og exi er ekki innifalinn í verði. Fjallaleiðsögumenn bjóða hins vegar útbúnað til leigu þegar á þarf að halda. Til langstíma er þó skynsamlegra að eignast slíkan útbúnað og geta leiðsögumenn verið til ráðleggingar um slíkt.

Mörg stéttarfélög og sumir vinnuveitendur greiða niður þátttökugjöld í gönguhópum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna. Leitið upplýsinga hjá ykkar stéttarfélagi. 

Innifalið í verð

  • Fagleg leiðsögn Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
  • Vikulegar þrekæfingar - þrisvar í mánuði (tveggja vikna frí um jól/áramót og sex vikna sumarfrí)
  • Mánaðarlegar kvöldgöngur á fjöll og fell í nágrenni höfuðborgarinnar.
  • Ríflegur afsláttur af mánaðarlegum fjallgöngum (11 á ári - sumarfrí í júlí).

Ekki innifalið

  • Akstur (sjá tillögur að samkeyrslu þátttakenda)
  • Gisting og uppihald í lengri ferðum
  • Sérhæfður einstaklingsútbúnaður fyrir fjallgöngur að vetrarlagi og jöklagöngur (s.s. broddar, belti, ísexi). Búnað má leigja hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum.

Smáaletrið:

Nái fjöldi þátttakenda Fjallagengisins ekki 40 þátttakendum fyrir lok ársins 2011 áskilja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn sér rétt til að leggja hópinn niður en bjóða þátttakendum Fjallagengisins þátttöku í hópi Fjallafólks eða Léttfetum ellegar endurgreiðslu sem nemur 75% árgjalds.


Aukaefni:

Tveimur dögum fyrir brottför í mánaðarlegar fjallgöngur er sendur upplýsinga-póstur á  skráða félaga með upplýsingum um skipulag og undirbúning komandi ferðar.
Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN