Fjallagengið hóf göngu sína haustið 2010 og er sjálfstætt framhald hinnar vinsælu fjallgöngudagskrár Toppaðu með 66°Norður sem hefur skilað nokkur þúsund göngumönnum og -konum á öllum aldri á hæsta tind landsins Hvannadalshnúk (2.110 m).
Eins og þeir einir vita sem reynt hafa er hver fjallganga einstakt ferðalag sem skilur eftir sig fjölmörg minningabrot. Ef til vill lituðu aðstæður á einhvern hátt minningarnar; skin og skúrir, einstakt sólarlag eða stjörnum prýddur næturhiminn. Kannski var það einstök samvinna hópsins, áhugaverðar umræður við samferðamenn eða hvernig þú nýttir reynslu þína og þekkingu til að yfirstíga erfiðar veðuraðstæður. Til langs tíma litið er víst að þáttaka þín í Fjallagenginu mun hjálpa þér við að yfirstíga fjölmargt sem þú hefðir áður litið á sem hindranir og auka færni þína á mörgum sviðum svo ekki sé talað um hið einstaka samband við náttúruna sem verður sífellt traustara eftir því sem ferðunum fjölgar.
Marga hryllir við tilhugsuninni um fjallgöngur í myrkri og kulda vetrarmánuðanna og vissulega er það meiri áskorun en fjallgöngur á hlýjum og björtum sumardegi. Þeir sem ganga reglulega á fjöll allt árið um kring, eins og Fjallagengið, vita að oftast er veðrið (aðstæðurnar) verst fyrir utan svefnherbergisgluggann ... en alls ekki svo slæmt þegar á hólminn er komið.
Ef þú ert til í að bjóða vetrarmyrkri og rysjóttu veðri birginn áttu fullt erindi í Fjallagengið.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996